Færsluflokkur: Íþróttir

US Masters mótið í golfi

philUS Masters mótið hefst á morgun. Þetta er eitt af fjórum svokölluðum risamótum í golfi sem haldin eru á hverju ári.  Líklega er þetta það frægasta af þeim öllum og það eina sem alltaf er haldið á sama vellinum, Augusta í Georgíu USA. Þar hefur mótið verið haldið síðan 1934.  Áhugamenn um golf eru því farnir að þekkja þennan völl braut fyrir braut sem gerir það enn skemmtilegra að fylgjast með mótinu.

Það er gaman að horfa á golfmót í sjónvarpi og SÝN á mikinn heiður fyrir þann metnað sem þeir hafa sýnt með útsendingum frá stórmótum í golfi.  Golf er ein vinsælasta almenningsíþrótt á landinu í dag og því ættu kylfingar að hlakka til þess að horfa á útsendingar frá US Masters á fimmtudags, föstudags, laugardags og sunnudagskvöld.

Á mótinu er keppt um hinn fræga græna jakka og hefur sá siður tíðkast að sá sem vann síðast færir nýjan sigurvegara í nýjan jakka. Ég er ekki klár á því hvernig þessu er háttað þegar sá sami vinnur tvisvar í röð, en þeim sem hefur tekist það eru Tiger Woods 2001 og 2002, Nick Faldo 1989 og 1990 og Jack Nicklaus 1965 og 1966.

philTigerÁ mótinu í ár keppa allir bestu kylfingar heims. Hinn stórskemmtilegi sóknarkylfingur Phil Mickelson sigraði í fyrra og hefur því titil að verja núna.

Stórgóð yfirlitsgrein um US Masters er á Wikipedia, m.a. listi yfir alla sigurvegara frá upphafi og fleiri tölfræði.
http://en.wikipedia.org/wiki/The_Masters_Tournament
 



Aðrar áhugaverðar vefslóðir um mótið:
http://www.augusta.com/
http://www.masters.org/en_US/index.html
http://www.golfdigest.com/majors/masters/http://www.pgatour.com/
http://www.us-masters-golf.com/ 

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 59602

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband