Peningastyrkir til frambjóðenda eru góðir

money_campaign.jpgAð sjálfsögðu á ekki að setja nein takmörk á hvað fyrirtæki eða einstaklingar mega styrkja frambjóðendur mikið.  Á sama hátt eiga frambjóðendur að ráða hvað þeir taka við háum styrkjum og frá hverjum.

Það er miklu verra að setja einhver sýndarhámörk á svona framlög. Slíkt leiðir til þess að menn finna upp á einhverjum krókaleiðum til að styðja við framboðin sín.  Auglýsingastofurnar, birtingafyrirtækin og fjölmiðlarnir verða látin senda reikningana eitthvað annað. Gerviafslættir verða búnir til. Leigupennar verða gerðir út á kostnað stuðningsmanna.

Miklu betra að hafa þetta sem mest uppi á borðinu.  Ef einhver frambjóðandi fer offari í auglýsingamennsku og skrumi þá fer það ekki framhjá neinum og kjósendur geta sniðgengið hann.

Sumir frambjóðendur hafa aðgang að ókeypis leiðum til að koma sér á framfæri.  Fjölmiðlafólk og þeir sem eru þekktir í þjóðfélaginu nota tengsl og vináttu til að auglýsa sig. Manni hefur oft ofboðið hvað fólk með slíkan bakgrunn getur fengið mikið pláss í fjölmiðlum.

Einnig geta auðmenn fjármagnað sína prófkjörsbaráttu sjálfir.

En svo á að banna eða torvelda litla óþekkta manninum að safna fé hjá þeim sem hafa trú á honum til að koma sér á framfæri.

Hámark eða bann á peningastyrkjum til frambjóðenda mun þess vegna snúast gegn markmiðum sínum.

Stundum eru hlutirnir ekki hugsaðir til enda.


mbl.is Guðlaugur hyggst ekki víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líka bara að hafa það sem skildu að láta frambjóðendur segja hverjum það fær styrki frá og hve mikið, þá myndi maður allavega vita hver er á bakvið hvern og hversu mikið.

Björn Þorsteinsson (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 20:18

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Oftar en ekki eru frambjóðendur með fólk sem fer í fjársöfnun - þar sem ég þekki til hafa þeir ekki verið í þeim málum sjálfir enda eðlilegast að hafa það þannig.

Sú umræða sem er í gangi um Guðlaug - Steinunni og Helga er á því plani að neðar verður vart komist -

Siðblind - mútuþegar - glæpalýður +++++

Einhvernveginn virðist mér að umræðan eða upphaf hennar  komi yfirleitt frá andstæðingum þeirra innan eigin flokka -  svo tekur haugahugsun dómaranna á bloggsíðunum við sem kveða upp úrskurði um afsagnir ofl. og ráðast gegn heimilum fólks - mökum og börnum.

Það er leitt að okkar litla þjóðfélag skuli láta ofbeldið ráða - en kanski er það eðliegt framhald þess að fyrrverandi ríkisstjórn var komið frá með ofbeldi og núverandi stjórn reist á þeim sama ofbeldisgrunni.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 4.5.2010 kl. 05:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband