Kolviður

kolefnisjofnunÉg fór á vefinn www.kolvidur.is og athugaði hvað ég þyrfti að gróðursetja margar trjáplöntur til að kolefnisjafna bílinn minn svo ég komist til himnaríkis þegar ég dey. Niðurstaðan kom á óvart. Ef ég gróðurset 58 birkiplöntur binda þær 6 tonn af kolefni. Ein lítil birkiplanta sem lifir þrjá til fjóra mánuði á ári nær að binda ríflega 100 kíló af kolefni, eða næstum því kíló á dag.  Mér finnst þetta með nokkrum ólíkindum!! Eða er ég að misskilja eitthvað?

Síðan var mér boðið að greiða 8573 kr. inn á bankareikning til að kolefnisjafna.  Ég ákvað samt að bíða aðeins með það.  Þetta minnir mig nefnilega dáldið á þegar páfinn í gamla daga var að selja aflátsbréf.  Það kæmi mér ekki á óvart ef einhverntíman í framtíðinni komist menn að þvi að þetta sé röng nálgun á vandamálinu. En kannski skipti ég um skoðun þegar ég verð búinn að kynna mér þetta betur.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þöll

Er ekki bara málið að fara í Blómaval og kaupa 58 birkiplöntur og planta á sumarbústaðarlóðina, ertu þá ekki nokkuð seif og kemst örugglega til himna ?

Sigrún Þöll, 22.5.2007 kl. 22:32

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Hmmm athyglisvert...

Brynja Hjaltadóttir, 22.5.2007 kl. 22:39

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er ekki alveg að skilja útreikningana á síðunni þeirra. Samkvæmt reiknivélinni þá koma 5,7 tonn af koldíoxíði úr úrblæstri bílsins míns við brennslu 2.160 l af dísilolíu! Hvernig má þetta vera?

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.5.2007 kl. 23:29

4 identicon

hmm...í framhaldi af fyrri hugleiðingu þinni þá er hægt að spyrja: hvað ætli það hafi losað mörg tonn af kolefni að koma upp þessu kolefni.is verkefni?

Annars sef ég vel þ.s. samkvæmt nýjustu fréttum, þá er víst hækkun hita á jörðinni vegna aukinnar geislunar frá sólinni en ekki vegna aukinar kolefnamengunar okkar.  Grein um það m.a. í nýjasta Lifandi vísindum, tímaritinu.

ossvo....Álverið í Reyðarfirði mengar víst svipað (í Co2) og 170 þúsund bílar.  Hvað ætli það séu margar plöntur sem við Íslendingar verðum að planta þar Guð tekur okkur öll í sátt, og opnar hliðið?

Jósep Húnfjörð (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 23:49

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

það endar með að við sjáum ekki skógana fyrir trjánum

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.5.2007 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 59550

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband