Duglegur strákur

western_sahara_boy.jpgÞað hlýtur að vera einhver saga á bak við þetta ferðalag sem fróðlegt væri að heyra.

Vestur Sahara er á sama tímabelti og Ísland en er eitt fátækasta ríki í heimi meðan við erum ennþá eitt ríkasta þrátt fyrir allt.

Þar ríkir pólitískt upplausnarástand sem jafnvel pólitíkin á Íslandi stenst ekki samanburð við.

Nágrannaríkin herja stöðugt á þjóðina þannig að erjur okkar við Breta og Hollendinga eru eins og skemmtilegur samkvæmisleikur á móti því.

Svona ungur piltur leggur þetta væntanlega ekki á sig nema það sé eitthvað í hann spunnið.  Eigum við ekki að taka hann að okkur og gera hann að manni?

Okkur vantar fleira duglegt og sjálfbjarga fólk núna.


mbl.is Flýr ófrelsi í Vestur-Sahara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

~ já, tökum vel á móti honum!

Vilborg Eggertsdóttir, 21.9.2010 kl. 21:54

2 identicon

Senda helvítið tilbaka!

Smith & Wesson (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 22:02

3 Smámynd: Ólafur Björnsson

Alltaf gott að fá vinnufúsar hendur.

Ólafur Björnsson, 21.9.2010 kl. 22:48

4 identicon

Já rétt , það hlýtur að vera talsvert í drenginn spunnið, úr því hann komst alla leið hingað norður eftir. Vonandi verður einhver mannsæmandi niðurstaða á framhaldinu.

Bjössi (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 23:49

5 identicon

Jú sammála tökum fagnandi á móti þessum dreng en hendum KKK liðanum Smith og Wesson úr landi... Höfum ekkert að gera við þessa útlendingahatara í okkar góða landi....

Bo (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 01:06

6 identicon

Væri ekki nær að senda Bo til Afríku finnst að honum þykir svona vænt um þetta lið?

Smith & Wesson (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 59625

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband