Áhugaverð tilraun mistókst

vote.jpgÞátttaka í stjórnlagaþingskosningunum er afsakplega lítil.  Þegar búið verður að draga frá auða og ógilda stendur eftir um þriðjungs kjörsókn.

Sjálfum fannst mér miklu eðlilegra að Alþingi endurskoðaði stjórnarskrána. Engu að síður er þessi tilraun áhugaverð og ég tók þátt í henni.

Frambjóðendur urðu allt of margir, meira og minna með sömu áherslur. Eitthvað sem menn virtust ekki sjá fyrir.

Kosningareglurnar eru ógegnsæjar og sárafáir skilja hvernig talningin virkar.  Betra hefði verið að leyfa fólki að velja fáa og telja bara einfaldan fjölda atkvæða á haus líkt og gert hefur verið í sveitatjórnakosningum lengi.

Það er of flókið að láta fólk búa til einhverjar númeraseríur heima hjá sér og mæta með þær á kjörstað.  Líklegt er að aldrað fólk og seinfærir hafi ekki tekið þátt af þessum ástæðum.

Kannski hefur samt vegið þyngst að fólk hefur ekki skilið nauðsyn þess að breyta, hvað þá umbylta stjórnarskránni núna.  Önnur verkefni eru brýnni.

Vonandi verða allar niðurstöður kosninganna birtar.  Þ.e. hvað hver frambjóðandi fékk mörg atkvæði í hvert sæti.


mbl.is 36,77% kosningaþátttaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tel að ástæðan fyrir lélegri þátttöku sé einfaldlega sú að stór hluti landsmanna er sannfærður um stjórnlagaþing sé einungis pólítískt samsæri. Með því slær ríkisstjórnin þrjár flugur í einu höggi:

Fyrsta flugan: Láta líta út sem svo, að ólýðræðislegasta ríkisstjórn í sögu landsins, sem mest allra hefur brotið á bak aftur eigin hugsjónir og kosningaloforð, og staðið fyrir mesta valdaráni af þjóðinni í manna minnum, sé einhver talsmaður "umbóta" og "breytinga" sem vilji færa "fólkinu", sem hún hefur svikið, arðrænt og hunsað "vald." Blekkja lýðinni og slá ryki í augu hans.

Önnur flugan: Losna við forsetan með að leggja áherslu á að gera "breytingar" á forsetaembættinu, með öðrum orðum, gera forsetan, eina talsmann lýðræðis sem eftir er í þessu landi, fyrir utan kannski Gnarrinn, ónýtan og óvirkan og með öllu valdalausan. Þá stendur enginn eftir í vegi fyrir þeim þegar þau vilja troða Icesave, ESB, forréttindum banka og stórfyrirtækja, AGS etc kjaftæðinu upp á þjóðina, þjóðin hefur þá engan að skjóta máli sínu til og stendur ein síns liðs.

Þriðja flugan: Losna við kirkjuna. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir hún hafi margíhugað úrsögn úr Þjóðkirkjunni, Össur er bróðir draugavinakallsins fræga og nú hafa þessir draugavinir og trúleysingjar tekið sig saman til að reka kirkjuna, spara smá pening og auðvelda stórlega Islamovæðinguna þegar við göngum í ESB-stan Islamska ríkið verðandi, ef barneignamál fara ekki að breytast, sem ekki er útlit fyrir, þegar óheftur Islamo innflutningur mun skella hér á (nema við forðumst ESB)

 Þjóðin kaus ekki afþví það var um lítið að kjósa nema málpípur og talsmenn ríkisstjórnarinnar. Og afþví hún sér í gegnum blöff og valdaránstilraunir í sauðargærum.

NÚ ER KOMIÐ NÓG AF GERFILAUSNUM ! ÞJÓÐIN LÆTUR EKKI HAFA SIG AÐ FÍFLI FRAMAR! NÚ ER KOMINN TÍMI Á ALVÖRU BYLTINGU!

 PS: Ég lét mig samt hafa það að fara og kjósa. Leið bara eins og manni sem er hafður að fífli eftir á að láta hafa mig út í skrípaleikinn.

Íslenska Andspyrnuhreyfingin (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:20

2 identicon

Jóhanna skilur ekki hvað hún er orðin óvinsæl, né hversu verðskuldaðar óvinsældir hennar eru þegar hún hefur látið leiða sig um eins og sauð af AGS og peningavaldinu.

Ef Jóhanna hefði struntað í lýðræðið og gefið skít í það, eins og í Icesave kosningunum, þegar hún sagðist bara ætla að skrópa á svipinn eins og bólugrafin gelgja með tyggjó, og þetta væri bara rugl og fólk ætti ekkert að mæta..........þá hefði verið met kosningaþáttta í þessa kosningu, afþví þjóðin vantreystir henni svo rosalega hún gerir alltaf öfugt við það sem hún segir.

Enda óhreint mjöl í pokahorni þessari kosninga. Skrattinn segir þér aldrei að leika einhvers staðar nema hann ætli að reyna að leiða þig í gildru. Hvet þá sem geta til að hafa augun úti varðandi allt sem viðkemur þessu stjórnlagaþingi...

Nú er komið nóg! (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:23

3 identicon

Íslenska Andspyrnuhreyfingin:

Ég er alls ekki sammála flestu sem þú segir.

1. fluga: Núverandi ríkisstjórn er líklega það besta sem var í boði í síðustu alþingiskosningum. Alls ekkert valdarán í gangi þar. Ekki mikið um blekkingar heldur.

2. fluga: Forsetinn er ekki eini talsmaður lýðræðis. Við, þjóðin, erum helsti talsmaður lýðræðis - einmitt það sem kosningarnar snerust um - en fólk áttaði sig greinilega ekki á. Fyrir utan að forsetinn hefur hagað sér eins og talsmaður auðvalds síðustu ár. Skal samt vera sammála þér þegar þú talar um forréttindi banka etc.

3. fluga: Svona þröngsýni og rasismi er almennt séð ekki talið til góðs. Kirkjan má mín vegna alveg deyja - enda búin að vera að því hægt og rólega síðan upplýsingin hófst (áfram raunvísindi!). Islam er alls ekkert verri trú en íslenska Kristnin. Þetta er trú á sömu ofurveruna, bara eftir annarri bók (báðar eru jafn klikkaðar að mínu mati). Alveg tímabært að við hættum að mismuna félagasamtökum á þennan hátt.

Ástæðan fyrir lítilli kjörsókn er ekki út af lélegu framboði, heldur lélegri umfjöllun og hvatningu fjölmiðla, fyrst og fremst. Það er ótrúlega fínt fólk þarna inni, fólk sem ég myndi sannarlega treysta til þess að taka mikilvægar ákvarðanir byggðar á reynslu.

Þetta eru ekki gerfilausnir. Þetta er bara það besta sem fólkið kemur með á borðið. Vissulega held ég að við eigum bara að láta bankana (og innistæður) gossa og byrja upp á nýtt með alvöru gjaldmiðil. Það væri fyrsta byltingin sem við ættum að stefna á.

ES: Gott hjá þér samt að fara að kjósa. Með því sýnirðu amk. vilja til þess að taka þátt með þjóðinni í að bæta stjórnsýsluna.

Tómas (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:52

4 identicon

1. Valdaránið gerðist eftir kosningarnar. Vilji fólksins hunsaður trekk í trekk, jafnvel í trássi við dóma Hæstaréttar eins og gerðist í Lýsingarmálinu.

2. Nei, en án hans hefði verið auðveldara að þröngva upp á þjóðina Icesave.

 3.

Ég er ekki með neinn rasisma. En bjó lengi á stað þar sem mikið var um heiðursmorð og önnur mannréttindabrot. Þar voru margar gömlu kirkjurnar orðnar moskur út af lítilli kjörsókn og stúlkur mikið þvingaðar í hjónabönd við frændur sem voru fluttir inn.  Svona er venjuleg Evrópsk stórborg í dag og því fylgir minna frelsi þegnanna. Það er ekki hægt að bera lýðræðisást kristinna manna í dag saman við það sem gerist í Islamska heiminum, þar sem við höfum engan rétt á að byggja kirkjur víðast hvar. Ég er fjölmenningarsinni í raunverulegri merkingu þess orðs, öll menning á tilverurétt, er falleg og þess virði að varðveita hana, rétt eins og fjölbreytileika náttúrunnar. Ég trúi ekki á tilvist kynþátta og get því ekki talist rasisti, og væri ég það hefði ég ekki efni á því, því ég er kynblandaður einstaklingur.

Íslenska Andspyrnuhreyfingin (IP-tala skráð) 29.11.2010 kl. 05:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 59600

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband