Leitin að lífi í alheiminum heldur áfram

setiathome_1057824.jpgAlltaf er mannkynið að komast lengra og lengra í leit sinni að lífi utan Jarðarinnar. Um nokkurt skeið höfum við verið að senda merki í átt að þeim stöðum í alheiminum þar sem vísindamenn telja að líf geti hugsanlega verið til staðar.  Þessi merki eru þannig að ef einhverjar lífverur á þessum stöðum væru að senda eins merki í átt til okkar þá myndum við taka eftir þeim.

Vísindamenn eru ekki allir sammála um hversu líklegt líf utan Jarðarinnar sé.  Stjörnufræðingurinn góðkunni Frank Drake (sem bjó til Cosmos þættina vinsælu ásamt Carli Sagan) setti á sjöunda áratugnum fram hina svokölluðu Drake formúlu til að reikna líkur á vitsmunalífi í alheiminum. Hann taldi að það hlyti að vera algengt í ljósi þess hversu ógnarstór alheimurinn er.

Síðan þá hafa margir velt vöngum yfir því hvers vegna við verðum ekki vör við neitt þrátt fyrir markvissa leit. Fræg er sagan um eðlisfræðinginn Enrico Fermi sem spurði félaga sína í Los Alamos rannsóknarstöðinni einu sinni í morgunkaffinu: "Hvar eru þá allir?".

Í bókinni Rare Earth eftir Peter D. Ward, Donald Brownlee er því haldið fram að þrátt fyrir óravíðáttur alheimsins séu skilyrðin á Jörðinni fyrir vitsmunalífi svo einstök að það séu sáralitlar líkur á að það hafi getað þróast annars staðar í þeirri mynd sem við þekkjum.

Ég fjallaði nokkuð um þetta efni í pistli fyrir nokkru síðan:
http://www.steinisv.blog.is/blog/steinisv/entry/646506/

Einnig er hér mjög áhugaverð grein um þetta á Stjörnufræðivefnum:
http://www.stjornuskodun.is/stjornuliffraedi/thversogn-fermis/


mbl.is Merkur plánetufundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er fyrir löngu síðan búið að "finna" yfir 200 tegundir af annars konar vitsmunalífi en það sem hér er, þ.e.a.s humanoid vitsmunalífs verum. Jörðin / Terra Matter er innan þriðju / fjórðu víddarinnar þ.e.a.s lengd X breidd X hæð X tími. Maðurinn hefur líka fyrir löngu síðan "fundið" að minnsta kosti sjö aðrar víddir ofan við þessa. Leitið því ekki lengra en nef þitt nær, maðurinn og margar aðrar tegundir humanoid vera hafa fyrir löngu síðan fundið hvora aðra. Mikið af þeirri tækni sem notuð er þessa stundina "hérna" er fyrir löngu úrelt tækni frá öðrum tegundum. Mikið væri nú gott ef að fólk færi að vakna aðeins.

1st (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 11:07

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Líf á öðrum hnöttum er mjög sennilegt.... en að "hitta" á. t.d. útvarpsmerki frá öðrum hnöttum, er ólíklegt.

Hvað er langt síðan "við" byrjuðum að senda frá okkur merki?

"Þúsund ljósár" er tiltölulega nálægt okkur. 10.000 ljósár er líka tiltölulega nálægt okkur.

Hvað vorum við að gera fyrir 10.000 árum?

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2011 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 59624

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband