Christopher Walken for president 2008

walken2008Til hamingju með afmælið Kristófer! 65 ár er enginn aldur. Lítið hefur borið á fréttum af framboði þínu í embætti forseta Bandaríkjanna árið 2008. Sennilega eltast fjölmiðlarnir bara við stóru nöfnin, McCain, Hillary og Obama. Engur að síður vona ég að þér eigi eftir að ganga vel og ég er viss um að þú yrðir góður forseti.  Það eru fordæmi fyrir því að leikarar hafi orðið forsetar, þó sitt sýnist hverjum um reynsluna af því.

Bendi lesendum á vefsvæði þitt www.walken2008.com/  - Þar er hægt að kaupa t-boli og ýmsa fylgihluti til styrktar framboðinu.
mbl.is Christopher Walken 65 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Practice what you preach

AlGoreMansionMargir hafa gagnrýnt Al Gore fyrir hræsni og yfirdrepskap.  Hvernig getur maður sem ferðast um allan heiminn í einkaþotum, lifir glamúrlífi í veislum og á dýrum hótelum, sagt öðrum að þeir eigi að draga úr mengun og ganga betur um umhverfið?

Sjálfsagt er málefnið þarft en það fer yfirleitt betur á því að þeir sem eru að breiða út einhvern boðskap temji sér lífsstíl við hæfi og gangi á undan með góðu fordæmi.

Bent hefur verið á að Al Gore á risavillu í Belle Meade, Nashville. Á hverjum mánuði notar þessi glæsivilla meira rafmagn en meðalheimili í Bandaríkjunum á heilu ári. Á sama tíma hefur Gore hvatt landa sína til að draga úr rafmagnsnotkun.
mbl.is Boðað til fundar með Al Gore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðkynja og illkynja viðskiptahalli

GudmOÍ sambandi við þessa frétt rifja ég upp grein sem ég las fyrir nokkru eftir Guðmund Ólafsson hagfræðing. þar segir hann að til sé bæði góðkynja og illkynja viðskiptahalli.  Illkynja viðskiptahalli er t.d. þegar ríkissjóður er rekinn með miklum halla og opinberir aðilar stofna til mikillar skuldasöfnunar.  Um góðkynja viðskiptahalla segir Guðmundur hins vegar:

"Öðru máli gegnir um viðskiptahalla sem kominn er til vegna þess að útlendingar eru fúsir að lána íslenskum einkafyrirtækjum. Verði hinn innlendi skuldunautur ekki gjaldfær, þá er það fyrst og fremst vandamál hins erlenda lánardrottins, sem tekið hefur á sig áhættu í íslensku atvinnulífi með slíkum lánveitingum. Raunar má segja að erlend skuldasöfnun einkafyrirtækja sé fyrst og fremst merki um góða trú útlendra fjárfesta á íslensku efnahagslífi og ætti mikill viðskiptahalli af þessum toga því að vera merki um styrka stöðu krónunnar. Jafnframt er ljóst að með erlendum lántökum eru einkafyrirtæki að flytja út áhættu, sem almennt leiðir til meiri stöðugleika og minni hættu á verðbólgu. Flestir hagfræðingar eru sammála um að viðskiptahalli og erlendar skuldir af þessu tagi séu ekki áhyggjuefni, aðalatriðið að fyrirtækin noti hið erlenda lánstraust til uppbyggilegra hluta."

Miðað við þetta er íslenski viðskiptahallinn frekar góðkynja enda eðlilegt þegar þjóðfélög eru að vaxa í efnahag og fólksfjölda að það sé viðskiptahalli.  Ég heyrði líka einhverstaðar að það hefði verið stanslaus viðskiptahalli í Bandaríkjunum meira og minna í 200 ár þegar þau voru að byggjast upp.

Öll greinin er hér.

Guðmundur kenndi mér stærðfræði á Laugarvatni á árunum 1980-1984.  Hann var afburða kennari og eftirminnileg persóna.  Kann ég þó fáar sannanir í diffur- og tegurreikningi ennþá.


mbl.is Íslandsbylgjan gæti skollið á mörgum löndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og Ronald Reagan var skagfirðingur !

reaganOnHorsebackFyrir nokkrum árum var því haldið fram af íslenskum ættfræðingum að Ronald Reagan bandaríkjaforseti væri afkomandi Íslendinga sem flutt höfðu til Vesturheims.  Ég man að það voru færð rök fyrir því að hann væri af skagfirskum ættum.  Þetta var síðan stutt með því að vísa til þess hversu skemmtilegur hann var auk áhuga hans á kúrekamyndum og hestamennsku !!
mbl.is Frægt frændfólk frambjóðenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír bjórar, 5 léttvínsglös og 4 sterkir á viku !

islendinguraddrekkaMér reiknast til að miðað við þessar tölur gæti meðal íslendingur verið að drekka á einni viku: 
3 stóra bjóra,
5 léttvínsglös,
2 tvöfalda gin í tonic,
2 koníaksglös !!!

Þetta er heldur meira en maður gæti ímyndað sér. Og þó, það eru nú býsna margir sem skvetta hressilega í sig.  Kannski gildir 80/20 reglan hér eins og víðar í tölfræðilegum dreifingum, þ.e. 20% af fólkinu drekkur 80% af áfenginu.

Annars er alltaf hægt að gagnrýna svona tölfræði.  Hvað má gera ráð fyrir að erlendir ferðamenn og verkamenn drekki mikið hérlendis?  Eru þeir ekki um 300 þúsund á ári?  Það kemur reyndar á móti að Íslendingar drekka væntanlega talsvert í útlöndum líka.  Svo er auðvitað ekki heldur inni í þessu vín sem Íslendingar taka með sér heim frá útlöndum og ekki það sem er bruggað í heimahúsum.


mbl.is Áfengissala jókst um 7% á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðasaga frá Færeyjum

Hér er síðbúin frásögn úr færeyjaferð okkar fyrir páska. Ég skrifaði þetta aðallega í ferðinni sjálfri en hef ekki getað sett þetta inn á bloggið fyrr vegna anna og stopuls netsambands.

Föstudagur 14. mars
IslandLögðum af stað frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 13:30. Til að losna við flugskjálftann fengum við okkur hvítvínsglas hjá Rúnari í Flugteríunni áður en farið var á loft. Rúnar var brattur og ætlaði að hitta okkur í Úthlíð um páskana.  Heiðskýrt var á leiðinni austur eftir og var frábært að horfa niður á snævi þakið landið úr flugvélinni. Maður greindi stærstu ár og fjöll sem gaman var að virða fyrir sér í vetrarbúningi.  Reyndum að taka myndir út um gluggann en þær heppnuðust ekki nema í meðallagi vel. Á myndinni hér til hliðar má þó greina Hvítá og Tungufljót. Lentum rúmlega 15 á flugvellinum í Vogey (Vágar) þar sem Doddi bróðir var mættur til að taka á móti okkur. Við ókum rakleitt í Kirkjubæ í gegn um nýju undirgöngin sem búið er að leggja frá yfir í Straumey.

Laugardagur 15. mars
FotboltiUnnar kynntist strax frændfólki sínu í Kirkjubæ. Fjögur frændsystkini hans eru fædd á sama ári og hann 1996; Svanna Þórðardóttir, Sverrir Sjúrðarson, Elín dóttir Guðrúnar (allt systkynabörn mín) og Bergþóra dóttir Ingibjargar (dóttur föðursystir minnar). Úlvhildur dóttir Teits (bróðir Ingibjargar) er fædd í desember 1995. Auk þessara eru fjölmargir aðrir krakkar þarna í kring á svipuðum aldri. Áður en langt um leið var byrjað að spila fótbolta á Kirkjubæjar Stadium. Það er skemmtilegt mannlíf í þessu þorpi, fólk gengur inn til hvers annars án þess að banka, mætir í kaffi og talar mikið saman. Flestir eru skyldir og ættarnafnið Paturson algengt.

Fjölskyldan var á fullu að undirbúa ferminguna daginn eftir. Við komum með íslenskt hangikjöt, flatkökur og rúllutertubrauð. Ýmsir komu til að spjalla um daginn og veginn.  Við hliðina á Dodda bróður býr Birna föðursystir. Maður hennar er Jóhann Henrik Poulsen, hann var áður prófessor við Fróðskaparsetrið í Færeyjum og hefur helgað líf sitt færeysku máli, verndun þess, orðasmíðum, ritstörfum og kennslu. Um morguninn var Jóhann að sækja kartöflur í eplaveltuna. Færeyingar kalla kartöflur epli (það sem við JohannHenrikköllum epli kalla þeir súrepli) og orðið velta merkir plægt land, þ.a.l. eplavelta=kartöflugarður. Kartöflurnar sem hann tók upp í haust hafði hann grafið niður ca 20 cm og geymt þær þannig í veltunni. Aldrei frýs niður fyrir þessa dýpt þarna. Jóhann talar góða íslensku og er mikill áhugamaður um íslenskt mál. Færeyingar hafa leitað mikið til íslendinga í málvernd og hafa tekið upp mörg íslensk nýyrði svo sem bíll, sjónvarp, myndband og fleira.  Eitt nýtt orð sagðist Jóhann hafa gefið íslendingum í staðin, þ.e. orðið geisladiskur sem er hugmynd sem Jóhann varpaði fram í samtali við Baldur Jónsson kollega sinn íslenskan þegar sú tækni var að ryðja sér til rúms. Endirinn var þó sá að Færeyingar notuðu sjálfir ekki það orð heldur tala þeir um flögu og hljómflögu.

Jóhann hefur þrisvar sinnum komið til Íslands með Norrænu og hjólað hálfan hringveginn, til skiptis norður og suðurleiðina. Þessar ferðir hefur hann farið á fimm ára fresti og stefnir á fjórðu ferðina næsta sumar.

MurinnFórum um kvöldið út í Reykstofu að hjálpa til við að leggja á borð og undirbúa fermingarveisluna. Núverandi kóngsbóndi í Kirkjubæ heitir Jóannes Patursson, hann var þarna á þönum að ganga frá eftir hóp sem var að klára aðra veislu. Staðurinn er núna í hans yfirumsjón en Kirkjubær er ríkisjörð og ábúðarrétturinn gengur til elsta sonarins. Reykstofan er talin vera um 800 ára gömul, mjög merkilegt hús og kirkjan fyrir neðan er byggð 1111.  Þá er kirkjumúrinn frægi þarna rétt hjá og er nýlega búið að byggja yfir hann stálbyrðing í tilraunaskyni til að athuga hvernig það virkar á steinveggina, en það þykir sæta nokkurri furðu hversu vel þeir hafa staðið óvarðir síðan á 14. öld þegar hafist var handa við að byggja kirkjuna sem aldrei var lokið við. Í framtíðinni er síðan fyrirhugað að smíða yfir múrinn varanlegra þak og loka byggingunni alveg. Búið er að gera líkan af því húsi og er það til sýnis í Reykstofunni.

Sunnudagur 16. mars - Fermingardagur Hjarnars
ThjodbuningarVöknuðum um klukkan níu, fórum í sturtu og sparifötin.  Færeyska fjölskyldan klæddi sig öll í þjóðbúning.  Hjarnar fermingardrengur fékk nýjan búning í tilefni dagsins. Klukkan hálf ellefu gengum við til kirkjunnar í Kirkjubæ sem eins og áður sagði er um 900 ára gömul að stofni til, þ.e. grunnur útveggir og gluggar. Í henni er fræg altaristafla eftir Sámal Mikines sem ég hef nýlega bloggað um.  Við sátum um það bil í miðri kirkjunni vinstra megin. Fyrir ofan okkur var örlítið gat ca 15x15 cm að stærð sem nú er lokað að utanverðu. Okkur var sagt að áður fyrr hefðu þeir holdsveiku þurft að hlýða á guðs orð í gegn um þetta gat, en þeim var ekki leyft að koma inn í kirkjuna.

Fermingarbörnin voru fjögur, þrír strákar og ein stelpa. Kirkjusóknin nær einnig yfir næsta þorp, Velbastað. Messan var áþekk íslenskum fermingarmessum nema ekki var almenn altarisganga.  Sálmasöngur var einnig meira í anda færeyskrar söngdansahefðar, þ.e. sungið með forsöngvara án undirspils. Í færeysku sálmabókinni voru margir þýddir sálmar eftir íslensk sálmaskáld svo sem Gnúpverjann fræga Valdimar Briem.

FraendsystkyniEftir ferminguna var gengið til Reykstofunnar. Þar var setið og spjallað góða stund en síðan hófst máltíð fyrir nánustu fjölskyldu fermingarbarnsins. Snæddur var þríréttaður matur, súpa, nautasteik og ís. Þessu var rennt niður með gosi, bjór eða rósavíni eftir því sem fólk kaus.  Það er gaman að borða í þessu gamla tréhúsi og virða fyrir sér myndræna þakbitana, þrungna af margra alda sögu.  Þarna er mikið af gömlum munum, myndum og ýmsum gjöfum sem staðnum hefur borist. Við fundum m.a. kaleik sem Skálholtskirkja hafði gefið Kirkjubæjarkirkju árið 1969.

VeislaSíðan fórum við aftur heim til fermingarbarnsins og tókum til við að undirbúa aðalveisluna sem er þar inni á heimilinu síðdegis.  Fermingarveislur í Færeyjum eru yfirleitt mjög fjölmennar, ekki er boðið í þær en venjulega mætir í hana öll stórfjölskyldan, vinir, nágrannar og aðrir venslamenn. Búið var að setja veisluborð í stofuna og fólk fór að koma um klukkan fimm.  Ekki mættu allir á sama tíma og margir stoppuðu ekki lengi, enda þurftu sumir að fara í 4-5 aðrar fermingarveislur þennan dag.  Veislugestir gæddu sér á þjóðlegum mat, skerpukjöti, brauði, tertum og fiskmeti að ógleymdu hangikjötinu og flatkökunum sem Dísa gerði klárt daginn áður. Þetta kvöld komu allt í allt yfir 200 manns til að heiðra fermingabarnið.  Gengum til náða um miðnætti en þá voru allir farnir heim fyrir nokkru síðan.

Mánudagur 17. mars
Færeyska vegakerfið er gott og vegalengdir stuttar.  Lengsti bílvegur milli tveggja staða er aðeins um 100 kílómetrar.  Eftir hádegi fórum við Dísa í ferð um norðureyjarnar. Unnar varð eftir hjá ættingjum sínum í Kirkjubæ. Síðan við ferðuðumst hér síðast hafa verið lögð göng milli Austureyjar og Borðeyjar þannig að nú er hægt að keyra til Klakksvíkur án þess að taka ferju. Þar sem göngin eru dýpst er búið að setja upp ljóslistaverk eftir Þránd Paturson; bláum, grænum og rauðum litum er varpað á gangnaveggina á þessum kafla djúpt undir Atlandshafinu. Mér finnst reyndar að í öllum neðansjávargöngum, eins og Hvalfjarðargöngunum ætti að vera merki við staðinn þar sem maður keyrir undir sjávarbotninn og síðan hvað maður er mörgum metrum undir sjávarmáli þar sem þau eru dýpst.

VidareidiVið lögðum að stað um klukkan eitt og vorum komin til Klakksvíkur fyrir klukkan tvö þó við keyrðum rólega og stoppuðum af og til til að njóta útsýnisins og taka myndir.  Það hafði snjóað nokkuð um nóttina og hvassir fjallatindarnir voru klæddir í hvítar húfur og sjöl. Þetta gefur byggðunum öðruvísi yfirbragð en að sumarlagi og maður gerir sér betur grein fyrir hörðum náttúruöflunum á þessum sæbröttu eyjum sem kaldar öldur norður Atlandshafsins lemja linnulaust alla daga og alla nætur.

Frá Klakksvík keyrðum við áfram norður eftir framhjá þorpi sem heitir Ánir og þaðan í gegn um tvenn jarðgöng þvert yfir Borðey. Hérna norður frá eru jarðgöngin ekki lengur tvíbreið og þeir sem aka suður þurfa að keyra út í útskot til að víkja fyrir þeim sem eru á norðurleið og eiga alltaf réttinn. Þarna fórum við yfir Hvannasund yfir í Viðey (Viðoy) sem er nyrsta eyja Færeyja.  Sundið er svo mjótt að það er keyrt yfir það á landfyllingu. Borðeyjarmegin við sundið er þorpið Norðdepil en Viðeyjarmegin heitir byggðin Hvannasund.  Þótti okkur merkilegt að þarna í Norðdepli er eini staðurinn sem við sáum götuljós utan Þórshafnar. En hvað um það, áfram héldum við og alla leið til þorps nyrst á Viðey sem heitir Viðareiði, það stendur á láglendiskafla sem liggur þvert yfir þessa annars brattlendu eyju.  Viðareiði er stórkostlegur staður, nyrsta byggð í Færeyjum. Fyrir ofan þorpið er hæsta fuglabjarg heimsins, yfir 700 metra hátt. Kirkjan stendur úti á bjargbrúninni á vinstri hönd þegar þú ekur inn í bæinn. Mörg húsin hérna eru eins og víðar á þessum slóðum lítil og sérkennileg, af mörgum gerðum og máluð í ýmsum litum, milli þeirra eru þröngar og kræklóttar götur, hlaðnir veggir og girðingar þar sem sauðfé er á beit. Austanvert á eiðinu er stórkostleg útsýn yfir í Fugley og Skúfey. 

SaudfeÞað er reyndar einkennandi fyrir Færeyjar hversu sauðfé er áberandi og má því segja að þær beri með sóma réttnefnið. Inni í flestum þorpum er sauðfé á beit og það sést jafnvel inni í Þórshöfn. Eins gengur sauðfé gjarnan sjálfala allt árið og á sumrin er það víða haft á beit í björgum og bröttum fjallshlíðum. Varla er færeyska féð ræktarlegt í augum íslenskra sauðfjárbænda, háfætt og stórbeinótt. Flestar kindur bera aðeins einu lambi.  En líklega er þetta einmitt stofn sem hentar best fyrir aðstæður þarna. Algengt er að þorpsbúar t.d. í Þórshöfn eigi nokkrar kindur í afskekktari byggðum. Á haustin er farið í smalamennskur og fé slagtað í heimahúsum. Kjötið er mest verkað til heimbrúks og m.a. búið til skerpukjöt. Í flestum húsum eru hjallar til að þurrka kjöt og fisk. Ekki fannst mér skerpukjöt gott í fyrstu en núna er ég farinn að borða það með bestu lyst. Færeyingar hafa sloppið við reglugerðarhelsið og ofstjórnina sem Íslendingar hafa lent í varðandi sauðfjárrækt og heimaslátrun. Sauðfjárhald er því ennþá virkur þáttur í menningu allra eyjaskeggja og samofið mannlífinu.

Við skoðuðum okkur vel um í Viðareiði og héldum svo til baka. Lofuðum okkur að koma aftur þarna síðar og gefa okkur tíma til að ganga um svæðið.  Ákváðum á bakaleiðinni að keyra út í Konueyju (Kunoy) sem er einnig tengd við Borðey með landfyllingu yfir Haraldarsund. Þar fórum við þvert í gegn um eyjuna um löng göng og síðan upp með vesturhlutanum í eina þorp eyjunnar og ber það sama nafn.  Þorpið stendur á smá láglendisparti undir skálarlaga hamrabelti sem var hvítt af snjó og ís. Mjög sérstakur og heillandi staður í umhverfi sem manni finnst varla vera byggilegt.  Útsýnin yfir í næstu eyju, Karlsey, er líka Konoystórbrotin.  Þangað er aðeins hægt að komast með ferju en síðan er hægt að keyra í gegn um nokkur göng eftir henni endilangri milli nokkurra smáþorpa sem hafa verið byggð nánast á hverri láglendisbrík þar sem hægt er að ímynda sér að hægt sé að láta hús standa án þess að það velti.

Að þessu sinni höfðum við ekki tíma til að fara út í Karlsey enda aðeins farið að skyggja. Héldum því heim á leið sömu leið að mestu, tókum þó smá krók inn í Fuglafjörð sem er nokkuð stór útgerðarbær á Austurey.  Þar fannst manni húsakostur og bæjarbragur bera þess merki að fjárhagur fólks væri betri en víða annars staðar. Margt þarna minnti á íslensk útgerðarþorp.

Komum til baka í Kirkjubæ um klukkan átta.  Þá voru ennþá veislugestir í húsinu, t.d. frændfólk mitt Ingibjörg, Hjördís, Hjörtur og Teitur börn Birnu móðursystur.

Við höfum nú heimsótt níu af þeim átján eyjum sem sagðar eru mynda Færeyja.  Þær sem við eigum eftir að fara til eru Suðurey, Litli Dímon, Stóri Dímon, Sandey, Mikines, Nólsey, Karlsey, Skúfey og Fugley.  Hægt er að ferðast út í allar þessar eyjar með bílferju eða þyrlu nema Litla Dímons sem reyndar er hálfgert svindl að telja með þar sem hún er afar lítil og óbyggileg.

Þriðjudagur 18. mars
AfmaeliÍ dag förum við til Vestmanna í afmæli hjá Brandi syni Bjargar systur minnar.  Hún á þrjá unga stráka, Eyði, Brand og Hanus. Maður hennar heitir John (sem er gamalt færeyskt nafn!) og er handboltamaður enda Vestmannabúar frægir handboltamenn í Færeyjum.  Þarna var heilmikil veisla og Unnar fór með fjölda annarra krakka á sparkvöllinn í þorpinu þar sem keppt var í fótbolta.  Guðrún systir mín var þarna einnig með krakkana sína Havar og Elsu.

Vestmanna er nokkuð stór byggð og þar er talsverð útgerð. Áður en göngin milli Vogeyjar og Straumeyjar voru gerð, voru allir flugfarþegar til og frá Færeyjum ferjaðir hingað yfir Vestmannasund.  Á leiðinni Vestmannatil baka keyrðum við upp á útsýnisstað fyrir ofan Norðradal þar sem við tókum nokkrar myndir.  Um kvöldið fengum við dýrindis svínasteik hjá Elsu húsmóðir í Kirkjubæ, konu pápa. Þar mættu líka Birna föðursystir og Jóhann Henrik maður hennar sem áður var getið.

Strax fyrsta kvöldið fann ég í bókahillunni hjá Dodda merkilega bók sem ég er búinn að vera að lesa fyrir svefninn og þegar tóm gefst. Hún heitir „Ferðin til Síberíu" eftir Siggert Paturson, bróður Jóannesar Patursonar kóngsbónda og stjórnmálamanns, langafa okkar.  Hann var fæddur 1869 og aðeins tvítugur að aldri fór hann einsamall í ferð til Síberíu þar sem hann þvældist um í tvö ár meðal veiðimanna og frumbyggja. Komst m.a. næstum því alla leið til Novaya Zemlya en varð að snúa við vegna ísreks. Eins og gefur að skilja lenti hann í ýmsum ævintýrum sem hann segir skemmtilega frá.  Siggert varð mjög frægur af þessari ferð sinni, bæði í Færeyjum, Danmörku og víðar í Evrópu. Auk þess að gefa út ferðabókina hélt hann fyrirlestra víða og kynnti menningu og náttúrufar Síberíu með ýmsum hætti. 

BraedurSiggert þvældist síðar víða um heim. Hann varð  á endanum þjóðsagnapersóna og lífskúnstner sem  stóð fyrir fyrir ýmsum furðulegum uppátækjum, m.a. í slagtogi við íslensk-færeyskan mann Karl Einarsson Dunganon, en  um þessa kumpána er t.d. fjallað í Corda Atlantica, stórskemmtilegri smásögu Halldórs Laxness í Sjö stafa kverinu (Siggert er þar kallaður Sjúrur). Þá skrifaði Björns Th. Björnssonar leikritið Dunganon um Karl þennan og kemur Siggert fyrir í því. Meðal uppátækja þeirra félaga var  stofnun Veraldarbankans, en markmið hans var að gera alla aðra banka heimsins gjaldþrota.  Það tókst reyndar ekki en allir fjármunir bankans komust fyrir í einum vindlakassa. Bankinn hafði höfuðstöðvar á eyjunni St. Kilda sem er lítill óbyggður klettur út í miðju Atlandshafi, Karl Dunganon lýsti þessa „eyju" sjálfstætt ríki og kallaði sig hertogann af St. Kilda. Karl bjó m.a. til þjóðfána ríkisins og gaf út frímerki í nafni þess.

Miðvikudagur 19. mars
FraenkurFæreyjar hafa verið byggðar jafn lengi og Ísland og hérna settist að sama fólkið og flutti til Íslands í kring um árið 900. Sumir segja að víkingarnir hafi hent þeim sjóveiku hér í land á leiðinni til Íslands. Það finnst Færeyingum ekki fyndið enda telja þeir sig með bestu sjómönnum í heimi. Þótt eyjarnar séu hrjóstrugar og ekki búsældarlegar á okkar mælikvarða, hafa íbúarnir ekki lent í sömu hallærum og plágum og við frónbúar frændur þeirra. Líklega hefur þar munað mestu um að þeir hafa alltaf átt betra með sjósókn og samgöngur við eyjarnar hafa líklega verið betri en til Íslands þannig að þeir hafa ekki verið uppiskroppa með aðföng og veiðarfæri.  Þá hafa þeir auðvitað sloppið við eldgos og afleiðingar þeirra auk þess sem vissulega munar talsvert um að þær liggja sunnar og hitastig er að meðaltali hærra þrátt fyrir rigningatíð.

HusDoddaVið fórum til baka heim til Íslands frá flugvellinum á Vogey (Vágar) um morguninn. Höfðum dvalið í góðu yfirlæti hjá Þórði og Kötu síðan á föstudag. Myndin hér til hliðar er af húsinu þeirra. Á flugmiðanum okkur (eða tölvupóstinum) stóð að brottför væri klukkan 11:30 en þegar við athuguðum þetta á netinu var brottför skráð klukkan 11:00.  Við drifum okkur því af stað og tókst að vera komin á tilsettum tíma. Síðan kom reyndar í ljós að fleiri höfðu verið með rangar upplýsingar og gerðu ráð fyrir flugi 11:30, þannig að vélin fór ekki í loftið fyrr en þá.

Flugið til Reykjavíkur tekur um einn og hálfan tíma.  Lentum í Reykjavík um klukkan eitt eftir skemmtilega daga hjá frændfólki í Fjáreyjum.

Fleiri myndir úr ferðinni eru hér.

Nokkrar fróðlegar vefslóðir um Færeyjar:
http://solberg.smugmug.com/  Frábærar myndir
http://www.visit-faroeislands.com/  Góð almenn upplýsingasíða
http://www.faroeislands.com/
http://www.patursson.fo/jp/index.php?id=46  Kirkjubær
http://www.koltur.com/bp/index.php  Koltur þar sem Björn Paturson rekur ferðamannabúgarð
http://www.faereyjaferdir.is/
http://www.mykines.fo/
http://www.hotelnord.fo/pages/fo.php  Hótelið í Viðareiði
http://www.sightseeing.fo/
http://www.kunning.fo/
http://www.visitsandoy.fo/Index.asp?


Þunglamalegt kerfi við gerð námssamninga

afþÁgúst Flóki sonur minn er að læra pípulagnir, byrjaði á samning hjá meistara á síðasta ári og stendur sig vel. Hann er núna að ganga frá pappírunum í kring um þetta.  Það er stofnun sem heitir IÐAN Fræðslusetur sem hefur umsjón með gerð þessara samninga. Ég hef aðstoðað hann aðeins við pappírsvinnuna þar sem það er ekki hans sterka hlið!  Það hefur komið mér á óvart hvað þetta er þunglamalegt og tímafrekt kerfi. En ferlið er svona:

1. Fyrst þarf að skila inn umsókn um gerð námssamnings.
1a. Sækja þarf eyðublað á vef Fræðslusetursins og fylla það út.
1b. Meistarinn þarf að skrifa á umsóknina
1c. Fá þarf yfirlit frá lífeyrissjóði síðustu 6 mánuði
1d. Fá þarf stimplað blað með námsferli frá Iðnskólanum
1e. Fara þarf með allt þetta til Fræðslusetursins (ég talaði reyndar við ágæta konu þar sem leyfði mér að senda þessi skjöl skönnuð í tölvupósti en hún sagði að það væri ekki venjan)

2. Síðan núna eftir ca tvo mánuði fær Ágúst samningseyðublöð í fjórriti sem hann þarf að fylla út.
2a. Hann þarf að fylla öll eyðublöðin fjögur út á sama hátt
2b. Hann þarf að láta meistarann skrifa AFTUR á ÖLL FJÖGUR blöðin
2c. Hann þarf AFTUR að fá stimpil frá skólanum á ÖLL FJÖGUR blöðin
2d. Hann þarf að fara í Menntamálaráðuneytið og láta þá stimpla á ÖLL FJÖGUR blöðin.
2e. Hann þarf að senda eitt eintak til skólans
2f. Hann þarf að senda eitt eintak til Menntamálaráðuneytisins
2g. han þarf að fara með eitt eintak til Fræðslusetursins
2h. Hann þarf að fara með eitt eintakið til meistarans - sem er kannski auðvelt þar sem hann vinnur hjá honum. (Hann fer með það krumpað í rassvasanum ef ég þekki hann rétt og kannski sleppur það við þvottavélina næst þegar buxurnar lenda í henni Wink )

Ég bara spyr, er ekki hægt að gera þetta kerfi eitthvað einfaldara og skilvirkara ?


The Vanishing Leprechaun

Ég rakst á þessa stórkostlegu sjónhverfingu á netinu.  Mynd sýnir 14 álfa (leprechauns) en ef efri pörtunum er víxlað fjölgar þeim í 15. 

Teljið álfana á þessari mynd :
thevanishingleprechaun







Þeir eru 14, ekki satt.

Víxlum nú efri pörtunum tveimur og hvað skeður:

thevanishingleprechaun_alt







Þeir eru orðnir 15 !

Maður getur orðið brjálaður á því að reyna að átta sig á því hvernig þetta getur gerst. Á þessu er samt skemmtileg skýring sem býður upp á ýmsa möguleika.  Átta blogglesarar sig á því hver hún er?

Á þessari vefsíðu er hægt að skoða þetta betur með því að smella á myndina

Það er líka gaman að prenta myndina út og klippa hana í þrjá búta eftir línunum.


Hvar er málfrelsið?

Mér finnst þessi dómur allt of harður þó ummælin séu ósmekkleg. Mér finnst að málfrelsið eigi að njóta meiri virðingar en þetta.  Þó einhver jólasveinn á blogginu segi við annan bloggara að hann sé "Aðal Rasisti Bloggheima" - hvað með það.  Hefur maður ekki heyrt annað eins og þetta?

Má ég t.d. ekki segja að einhver sé "mesti nasisti í bloggheimum" eða "mesti kommúnisti í bloggheimum" ?

Má ég segja að einhver sé "mikill rasisti", "dálítill rasisti" eða bara rasisti ?

Ég fór í smá vinnu á netinu og leitaði að stöðum þar sem orðið rasisti kemur fyrir.

Hérna bloggar Egill Helgason og segir að ef Bobby Fischer sé á móti gyðingdómi þá sé hann rasisti og líklega haldinn sjálfshatri!!!

Hérna segir einhver bloggari Weemad að Leoncie sé hæfileikalaus athyglissjúkur rasisti !!!!  Þarf ekki að leita hann uppi og sekta hann ???

Hérna segir bloggarinn Ommi að Spike Lee sé einhver mesti rasisti sem hann viti um !!!

Hérna segir Jenný Anna Baldursdóttir að James Watson sé rasisti.

Hér talar einhver um að tiltekinn hundur sé rasisti, er það ekki brot á dýraverndunarlögum?

Þetta var bara það sem ég fann í fljótu bragði.  Mér finnst allt of langt gengið í þessum dómi og vona að honum verði snúið af hæstarétti.  Það má spyrja sig hvort lögmenn fari að leita að svona orðalagi á netinu og hvetja menn til málsókna fyrir hluta af bótafjárhæðinni.

Tek þó fram að ég er alfarið á móti rasisma og varðandi stjórnmálaskoðanir mikið nær Ómari Valdimarssyni en Gauki Úlfarssyni.




mbl.is Dómi líklega áfrýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta börn æft íþróttir of mikið ?

ugUnnar sonur minn er 11 ára og mikill áhugamaður um íþróttir.  Hann skráði sig í Knattspyrnuakademíuna í Kórum Kópavogi.  Þar mæta þessir guttar kl. 6:20 á morgnanna þrjá daga vikunnar og æfa fótbolta undir stjórn góðra þjálfara og hluti af prógramminu er að fá í heimsókn þekkta knattspyrnumenn.

Unnar byrjaði sem sagt daginn í dag á því að vakna fyrir klukkan sex og taka klukkutíma þjálfun.  Síðan fór hann í skólann og þar var líka leikfimitími.  Eftir skólann var síðan fótboltaæfing hjá Fylki og eftir hana var handboltaæfing sem Unnar er líka að æfa.  Það var talsvert þreyttur maður sem kom heim um klukkan hálf sjö og átti þá eftir allt heimanámið !!!

KorinnÉg var svona aðeins að hugsa hvort þetta er ekki að verða einum of mikið. Ég vil ekki líkja þessu við barnaþrælkun en er samt viss um að ef börn á þessum aldri væru að vinna svona mikið þætti flestum nóg um.

Að lokum má geta þess að íþróttahúsið í Kórnum í Kópavogi er enn ein rósin í hnappagat Gunnars Birgissonar. Ég varð agndofa þegar ég kom þarna inn.  Mikið öfunda ég nágranna okkar af þessum manni miðað við allt ruglið hérna í Reykjavík. Legg enn og aftur til að Reykvíkingar reyni að kaupa hann sem Borgarstjóra.


Er ályktunin rétt?

Stundum finnst mér menn draga rangar ályktanir í svona rannsóknum. Foreldrar sem hafa þá eiginleika að haga sér vel, læra og aðlagast eru að sjálfsögðu miklu líklegri til þess að taka sameiginlega þátt í uppeldi barna sinna. Þetta eru síðan hæfileikar sem erfast og þar af leiðandi er líklegra að börn þessara foreldra hafi sömu eiginleika.

Foreldrar sem hafa litla aðlögunarhæfni, haga sér illa og læra lítið hljóta að vera miklu líklegri til að skilja og þar af leiðandi sjaldnar sem þeir ala börn sín sameiginlega upp. Þessir þættir erfast síðan líka til barna þessa fólks.

Sem sagt, það er mjög mikilvægt að draga ekki ályktun um orsök og afleiðingu þegar sömu þættir geta haft áhrif á hvort tveggja.

Einu sinni var gerð rannsókn sem sýndi að tíðni berklasjúklinga í Arizona var mun hærri en í öðrum ríkjum. Þýddi það að það var eitthvað í umhverfinu í Arizona sem ýtti undir berkla?  Nei, þegar betur var að gáð kom í ljós að loftslag í Arizona var mjög hollt fyrir berklasjúklinga og þess vegna fluttu margir þeirra þangað og þá varð tíðni þeirra hærri en í öðrum ríkjum.

Einu sinni sýndi rannsókn að flestir stjórnmálaleiðtogar (karlkyns) voru elstu synir foreldra sinna. Þá var dregin sú ályktun að þeir hefðu þroskað með sér leiðtogahæfileika í ljósi þess að þeir voru elstir. En þá benti einhver glöggur maður á þá einföldu staðreynd að flestir synir eru elstu synir !!!


mbl.is Pabbar auka hamingjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4Zkosningarnar í USA

Ef allt gengur illa hjá Hill-
ary Clinton, hann Bill
ætti þá bara
til Íslands að fara
og aðstoða Villa okkar Vill


mbl.is Bill Clinton gagnrýnir Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru stýrivextir seðlabanka Zimbabwe?

zimbabweSamkvæmt þessari frétt hækkar verðlag í Zimbabwe um ríflega 200% á hverjum degi, eða um ca 10% á hverri klukkustund.  Ætli þetta hljóti ekki að vera heimsmet?

Hér finnst mönnum 5% verðbólga á ári mikið, og þurfa að halda stýrivöxtum í 13% - Hverjir eru stýrivextir Seðlabanka Zimbabwe?

Ég giska á að þeir sem selja verðmerkivélar séu þeir sem græði mest þarna núna. Það hýtur að þurfa hálfa þjóðina til þess að endurverðmerkja vörur í búðarhillum oft á dag!!!  Og hinn helmingurinn af þjóðinni vinnur líklega við að prenta peningaseðla.

En án gríns þá hljóta Zimbabwe búar að nota eitthvað annað en eigin gjaldmiðil í viðskiptum.  Líklega dollara og svo er ekki ólíklegt að vöruskipti séu algeng.
mbl.is Verðbólga í Zimbabwe 66.212%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rakaraþraut

Jón rakari í Borgarnesi rakar alla bæjarbúa nema þá sem raka sig sjálfir.  Hver rakar Jón rakara?

JonRakari

Nú er stundin runnin upp...

...sem ég hef lengi óttast, eða amk. vitað að ætti eftir að bresta á.  Ég er hættur að geta kennt syni mínum stærðfræði.  Hann er á þriðja ári í menntaskóla og byrjaður að læra diffrun og tegrun. Ég hef yfirleitt getað hjálpað honum hingað til, með algebru, hornaföll, rúmfræði, logaryþma o.þ.h.  En nú stend ég frammi fyrir því að ég er búinn að steingleyma þessum fræðum.

Tegrun

LGudmSamt lærði þetta allt á sínum tíma og gekk ágætlega, fyrst í menntaskóla hjá þeim merka fræðimanni Guðmundi Ólafssyni og síðan í Háskólanum.  Kunni allar þessar reglur fram og til baka, Subsition, L'Hopital o.s.frv.  Tók próf með ágætum.  En ég hef ekkert notað þetta síðan.

Eins og þegar ég var í skóla þá finnst mér vanta fleiri sýnidæmi í kennslubókinni sem Bjössi er með, 600 blaðsíðna Calculus doðrantur. Man að ég keypti mér aðra bók fulla af leystum dæmum á sínum tíma en líklega hefur hún farið á haugana. Ég veit ekki af hverju höfundar stærðfræðibóka eru ekki með fleiri leyst dæmi, líklega vegna þess að þá óttast þeir að nemendur læri fræðin ekki nógu vel, heldur læri bara að leysa allar tegundir dæma eins og páfagaukar.

Ég fór að leita að safni með tegrunardæmum á netinu en fann engin góð. Það gerir leitina erfiða að það er ekki hægt að leita eftir tegrunartákninu. Vita blogglesara um einhverjar síður af þessu tagi?

Léleg fréttaþjónusta hjá MBL.IS

Nú eru næstum tveir klukkutímar síðan Tiger Woods sigraði Dubai Desert Classic golfmótið.  Á MBL.IS er ennþá sólarhringsgömul frétt um að Ernie Els hafi náð efsta sætinu - þ.e. eftir þriðja keppnisdaginn !!!! 

Þetta er allt löngu komið inn á visir.is og útsendingin er búin á SÝN+ 

Hvað eru þeir að hanga þarna á Mogganum?


mbl.is Els náði efsta sætinu í Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikines á Kjarvalsstöðum

samuel_joensen_mikines_portraitNú stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýning á málverkum Færeyska listmálarans Sámal Joensen-Mikines. Mikines er tvímælalaust frægasti málari Færeyinga fyrr og síðar.  Hann er fæddur 1906 í vestustu eyju Færeyja, Mykinesi, þar sem þá var ríflega 100 manna byggð.  Hann tók sér síðar nafn eyjunnar sem eftirnafn enda var mannlífið og náttúran þar uppspretta flestra verka hans. 

Ævi Mikines var ekki blómum skrýdd enda glímdi hann löngum við þunglyndi og áfengissýki auk þess sem hann þjáðist af psoriasis þannig að á köflum var hann ófær um að mála. Hann gifitst tvisvar og skildi jafn oft. Þegar Mikines var á þrítugsaldri dóu tvö yngri systkyni hans úr berklum. Árið 1933 fórust 43 færeyskir sjómenn í óveðri á leið af Íslandsmiðum, þar af sjö frá Mykinesi, allt ættingjar eða vinir málarans.  

List Mikines er sprottin upp úr þessu umhverfi. Frægustu málverk hans og þau sem orka sterkast á mann lýsa sorg, söknuði og harmi á ótrúlega áhrifamikinn hátt. Annars gældi hann við margar listastefnur og verk hans eru mjög fjölbreytt, sum harmræn, önnur björt en bera öll sterk höfundareinkenni. 

Á sýningunni á Kjarvalsstöðum eru sýnd 49 málverk og í þeim hópi eru flest frægustu verk meistarans. Ég hvet alla til missa ekki af þessu tækifæri og skoða sýninguna sem stendur til 6 apríl.


mikines5
Fyri jarðarferð

mikines2
Mykineskona

mikines3
Saknur

mikines5
Grindardráp

mikines10
Morgunsól

mikines8
Kumlagynnan brýtur

mikines4
Dunga Hans Pauli

pattho2
Mikines málaði portret af langafa
bloggritara.  Við erum samt ekkert
sérlega líkir, eða hvað!


Með mömmu á tíræðisaldri í kosningabaráttu

RobertaMcCainÞetta hefur allt þróast öðruvísi en maður bjóst við.  Ég hélt fyrirfram að Giuliani myndi koma sterkari inn í þessa baráttu eftir alla þá viðurkenningu sem hann hlaut sem borgarstjóri NY í árásunum á tvíburaturnana 9/11.  John McCain hefur verið að stögla í frambjóðendaprófkjörum ótal sinnum og er auk þess orðinn vel við aldur. Ég hefði haldið að fólk væri þreytt á honum.  En þetta er alltaf reffilegur karl og kemur vel fyrir.  Hann á auk þess að baki merkilega sögu og lífsreynslu sem aflar honum örugglega virðingar.

Ég heyrði um daginn að móðir hans Roberta McCain tekur virkan þátt í kosningabaráttunni.  Hún er 95 ára gömul og eldspræk. John vísar gjarnan til mömmu sinnar þegar hann er spurður út í aldur sinn.  Nýlega var sú gamla á ferðalagi í París.  Hún vildi leigja bíl en fékk það ekki vegna aldurs.  Þá gerði hún sér lítið fyrir, keypti sjálf bíl og keyrði um allt.
mbl.is Schwarzenegger styður McCain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki allt sprungið í tætlur núna ?

Það vakti athygli mína í þessari frétt að sagt er "OJ287, er í öruggri fjarlægð frá okkar sólkerfi eða í 3,5 milljarða ljósára fjarlægð í stjörnumerkinu krabbanum"

Þ.e. þegar við horfum á þetta svarthol frá jörðinni núna sjáum við það eins og það var fyrir meira en 3,5 milljörðum ára.

Síðan er talið að annað svarthol muni rekast á þetta og valda gífurlegri sprengingu og sagt, "Ég þori ekki einu sinni að hugsa um það. Þetta verður ótrúlega öflug sprenging. Sem betur fer verður hún ekki á okkar tíð heldur eftir 10-20 þúsund ár"

Hefur þessi sprenging þá ekki fyrir löngu átt sér stað? Við sjáum hana bara ekki fyrr en eftir einhverja milljarða ára?

En tíminn er afstæður !!
mbl.is Gríðarstórt svarthol fundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fá Reykvíkingar ekki Gunnar I Birgisson ?

GunnarIAf hverju semjum við ekki við Gunnar I Birgisson um að taka að sér að vera borgarstjóri í Reykjavík? Ég hugsa að hann gæti bara tekið það með vinstri með Kópavoginum. Ef Gunnar væri búin að vera borgarstjóri í Reykjavík jafn lengi og í Kópavogi væri:

  • fyrir löngu búið að leggja þessa Sundabraut,
  • gömul hús annað hvort rifin eða gerð myndarlega upp,
  • ekki þörf á að flytja í önnur sveitarfélög til að fá lóðir,
  • ekki bannað að selja bjór úr kælumí Austurstræti,
  • saklausu ráðstefnufólki ekki bannað að gista á hótelum bæjarins 
  • o.s.frv. o.s.frv...

mbl.is Ólafur tekur við lyklum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 59743

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband