22.9.2010 | 21:03
Mikil samgöngubót en hefði getað verið enn betri
Það verður mikil bót að fá þennan malbikaða veg yfir Gjábakkann. Tæpir 90 kílómetrar eru eftir þessum vegi frá heimili mínu í Árbænum austur í Úthlíð þar sem við eigum annað heimili. Ívið lengra en núverandi vegur en væntanlega fljótfarnari.
Ókosturinn er að þurfa að keyra þessa hlykkjóttu og blindu leið í gegn um þjóðgarðinn fyrir norðan vatnið. Slysahætta á þeirri leið eykst með því að þessi leið verður fjölfarnari en sú gamla.
Ég var hrifnastur af tillögu 3, þ.e. að leggja veg fyrir sunnan vatnið. Enn er hægt að gera það og líklega verður það einhverntíman að veruleika. Nýi vegurinn liggur á leið 2 á myndinni hér til hliðar. Sá gamli er leið 1.
Ég geri ráð fyrir að vegalengdin úr Reykjavík styttist verulega þegar kominn verður vegur fyrir sunnan vatnið. Þá verður líka hægt að keyra Nesjavallaleiðina frá höfuðborgarsvæðinu inn á þann veg.
Ómar Ragnarsson hafði áhuga á því, sjá hér.
Væri góður vegur austur á Nesjavelli og þaðan suður fyrir vatnið myndi það minnka verulega álagið á veginn yfir Hellisheiði. Allir sem væru að fara í austanvert Grímsnes, Laugardal og austurhluta Biskupstungna myndu velja þá leið. Þá myndi það minnka verulega umferð um þjóðgarðinn.

Lyngdalsheiðarvegur opnaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þorsteinn Sverrisson
Nýjustu færslur
- Sparnaður í Excel en ekki í alvörunni
- Einræða Guðs um framtíð lífs á Jörðinni
- Leifur Eiríksson kemur alltaf aftur
- Taflmaðurinn
- Leitarvélar veita þjónustu
- Eitt sinn skal hver deyja
- Náttúruleg óhreinindi eru hollari en aukaefni
- Skáldfeðgar III
- Skáldfeðgar II
- Skáldfeðgar I
- Skilyrði fyrir lífi eru margþætt
- Lítil saga um verðskanna
- Fjórar vísur um sólarlagið við Faxaflóa
- Er rétt að allar auðlindir séu í þjóðareign?
- Þrúgur reiðinnar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.