Internetið kemur frá Guði

Sit hérna við borðið í bústaðnum okkar uppi í Úthlíð. Internettengingin er með besta móti núna eftir að hafa verið brokkgeng í vetur. Það er staðreynd að Guð sendi mannkyninu internetið af því að hann elskar okkur öll svo mikið. Til vitnis um þetta þá var það presturinn á Stóra Núpi, Sr. Axel Árnason sem setti hérna upp loftnetið og routerinn fyrir okkur í hittifyrra. Sr. Axel er svona dáldið eins og Jón Prímus í Kristnihaldi undir Jökli.  Þeir segja að hann sé ekkert bráðfljótur að jarða en þeim mun duglegri við að setja upp nettengingar.

Áðan fórum við í pottinn og sáum frábæra ljósasýningu, norðurljósin dönsuðu á himninum með óvenju miklum látum. Það kom smá snjóél en síðan stytti upp og varð heiðskýrt á köflum þannig að við sáum stjörnur og nýlegt vaxandi tungl.

Þrír keppendur komust áfram í X-Factor.  Merklilegt að þar eru tveir skyldir mér, og ég laglaus með öllu! Þeir eru reyndar ekki náskyldir mér, afi Þórdísar mömmu Guðbjargar var Ari Guðmundsson í Borgarnesi, bróðir afa míns Þorsteins Guðmundssonar bónda á Skálpastöðum.  Jógvan er svo færeyingur eins og ég er að hálfu þannig að við hljótum að vera dáldið skyldir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hinrik Már Ásgeirsson

Gott að vita að þú nýtur lífsins... ég er í skólanum þessa helgi með Florence Kennedy að læra um samninga og deilur... það mun verða hundleiðinlegt að semja við mig eftir þetta.

Hinrik Már Ásgeirsson, 24.3.2007 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Sverrisson

Höfundur

Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson
Tölvunarfræðingur, Árbæingur og Hrunamaður. Í Einherjaklúbbnum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 59682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband