13.10.2007 | 18:42
Verða bókasöfn framtíðarinnar bókalaus?
Á leiðinni heim úr vinnunni í gær kom ég við bókasafninu í Árbænum, sem heitir því góða nafni Ársafn. Fullorðin kona tók á móti mér í afgreiðslunni og ég spurði hana hvort þau væru með Doktor Zhivago eftir Boris Pasternak. Nei ég á hana ekki sagði konan en ég get búið hana til fyrir þig. Ég varð frekar undrandi og spurði hvernig það væri hægt. Hún sagði mér að á internetinu sé í dag hægt að finna ógrynni bókatexta í heilu lagi. Þetta væru sérstaklega gamlar og sígildar bækur sem væru komnar úr höfunarrétti.
Svo sagði hún mér að bókasafnið væri sem sé búið að kaupa sérstaka bókavél. Inn í hana er hægt að senda svona heila bókatexta sem vélin prentar út og límir saman í kiljuform. Ég bað hana þá blessaða að búa til fyrir mig eintak af Doktor Zhivago, Og viti menn, Konan fer inn í bakherbergi og kemur eftir stutta stund með bókina sem að sjálfsögðu var eins og splunkuný.

Núna er ég upp í sumarbústað að lesa bókina og milli kafla er ég að velta fyrir mér hvort bókasöfn í framtíðinni verði ekki alveg bókalaus og bækur verði bara búnar til eftir þörfum eins og konan á ársafninu gerði fyrir mig í gær.
Um bloggið
Þorsteinn Sverrisson
Nýjustu færslur
- Sparnaður í Excel en ekki í alvörunni
- Einræða Guðs um framtíð lífs á Jörðinni
- Leifur Eiríksson kemur alltaf aftur
- Taflmaðurinn
- Leitarvélar veita þjónustu
- Eitt sinn skal hver deyja
- Náttúruleg óhreinindi eru hollari en aukaefni
- Skáldfeðgar III
- Skáldfeðgar II
- Skáldfeðgar I
- Skilyrði fyrir lífi eru margþætt
- Lítil saga um verðskanna
- Fjórar vísur um sólarlagið við Faxaflóa
- Er rétt að allar auðlindir séu í þjóðareign?
- Þrúgur reiðinnar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 59970
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.