30.11.2007 | 21:06
Það er stórhættulegt að blogga vitleysu
Fyrir nokkru síðan var fétt í mogganum þess efnis að ungfrú Kanada væri fallegasta kona á jörðinni. Ég setti inn blogg (sjá hér) um að þessi kona væri af íslenskum ættum og fann einhverja heimskulega mynd á netinu sem ég laug að væri af henni og foreldrum hennar.
Klukkan tólf sama kvöld þegar ég var að festa svefn hringdi blaðamaður á Morgunblaðinu í mig og vildi óður og uppvægur vita hvaðan ég hefði þessar heimildir. Sjálfur sagðist hann hafa heimildir fyrir því að þessi fegurðardís væri af rússnesku bergi brotin. Ruglaður í höfðinu stamaði ég út úr mér að ég hefði nú bara verið að grínast og baðst afsökunar. Hélt kannski að ég hefði verið að brjóta einvherjar reglur. Blaðamaðurinn varð hálf fúll því hann hefur líklega séð fyrir sér að geta búið til áhugaverða frétt og janfvel tekið viðtöl við íslenskt frændfólk konunnar. Sagði samt kurteislega "nú varstu bara að djóka", síðan kvöddumst við. Ég var lengi að sofna eftir þessa óvænt vakningu og svaf reyndar illa alla nóttina. Lærdómurinn af sögunni: Það er ljótt að plata.
En fyrir þá sem ekki vita þá tilkynnist það hér með að það er ekkert að marka það sem ég segi á blogginu.

Um bloggið
Þorsteinn Sverrisson
Nýjustu færslur
- Sparnaður í Excel en ekki í alvörunni
- Einræða Guðs um framtíð lífs á Jörðinni
- Leifur Eiríksson kemur alltaf aftur
- Taflmaðurinn
- Leitarvélar veita þjónustu
- Eitt sinn skal hver deyja
- Náttúruleg óhreinindi eru hollari en aukaefni
- Skáldfeðgar III
- Skáldfeðgar II
- Skáldfeðgar I
- Skilyrði fyrir lífi eru margþætt
- Lítil saga um verðskanna
- Fjórar vísur um sólarlagið við Faxaflóa
- Er rétt að allar auðlindir séu í þjóðareign?
- Þrúgur reiðinnar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já - vist er það rétt að það er ljótt að plata. Einu sinni var ég búin að heita því að gerast bara vinur ættingja og náinna vina, en ekkert fyrirheit er heilagt og sveitungar komast svo nærri ættingjum og vinum að ég læt þá undir sama hatt. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 30.11.2007 kl. 23:16
Þetta var mátulegt á þig. Ó.... eins gott að þeir trúi ekki öllu sem ég skrifa.
Anna Einarsdóttir, 2.12.2007 kl. 00:03
Já það er örugglega margt sem þú segir Anna sem myndi sprengja alla lygamæla
Takk fyrir að hleypa mér í klúbbinn Helga. Mér finnst þægilegt að hafa þá á bloggvinalistanum sem ég vil kíkja á af og til. Vonandi heldur þú áfram að segja frá Hrunamönnum.
Þorsteinn Sverrisson, 2.12.2007 kl. 13:21
Þorsteinn ég held að það muni auka töluvert heimsóknir hjá okkur í bloggheimum ef við förum að sérhæfa okkur í fegurðardrottningum, ættum þeirra og uppruna.
Gunnlaugur B Ólafsson, 9.12.2007 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.