14.3.2007 | 21:05
Merkileg staðreynd
Þessi mynd var tekin á Hrafnistu nýlega
![]() |
Tölvuleikir ekki lengur bara fyrir börn og unglinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2007 | 20:20
Fylki gekk vel á Goðamótinu
Fylkisstrákrnir eru að koma heim af Goðamótinu núna kl. 20:30. Ingimundur var að hringja frá Baulu í Borgarfirði. Unnar Geir var bæði með í D og E liðinu, var markvörður í D og lenti í 3. sæti en spilaði úti með E sem náði fyrsta sæti.
Það er gaman þegar vel gengur í mótum eins og þessum. En í starfinu í yngri flokkunum er samt reynt að leggja meira upp úr leikgleðinni og að láta strákana læra að hafa gaman af fótbolta og félagsskapnum í kring um hann. Enda er það þannig að aðeins brot af þessum strákum koma til með að æfa keppnisfótbolta í framtíðinni. Flestir eiga hins vegar eftir að stunda knattspyrnu sem skemmtilega afþreyingu með vinum og félögum, kannski fram á gamals aldur. Knattspyrna er að þessu leyfi lík golfi, hestamennsku og fleiri íþróttagreinum.
Á efri myndinni hér til hliðar er Unnar með E liðinu en á þeirri neðri er hann með D liðinu. Í þessum liðum eru strákar á yngra ári í 5. flokki.
Hægt var að fylgjast með mótinu alla helgina hérna á bloggsvæðinu http://godamot.blog.is/blog/godamot/ og þessar myndir eru teknar þaðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2007 | 13:44
Afmælisveisla
![]() |
Bin Laden fimmtugur í dag? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2007 | 11:08
Tölvunarfræðingar í útrýmingarhættu
Þessi forritunarkeppni er gott framtak og eflir vonandi áhugann á faginu.
Vinnufélagi minni sendi mér þessi gögn frá Hagstofunni. Hér sést fjöldi þeirra sem útskrifast hafa í tölvunarfræði og tengdum greinum frá árinu 1995 - 2005.
Námsleið - Tegund náms | 1995-1996 | 1996-1997 | 1997-1998 | 1998-1999 | 1999-2000 | 2000-2001 | 2001-2002 | 2002-2003 | 2003-2004 | 2004-2005 |
Samtals útskrifaðir úr tölvutengdu námi: | 20 | 18 | 31 | 80 | 128 | 172 | 192 | 159 | 179 | 126 |
Kerfisfræði TVÍ | 55 | 76 | 88 | 60 | 23 | 19 | 14 | |||
Tölvunarfræði BS-próf | 21 | 38 | 65 | 80 | 92 | 59 | ||||
Tölvu- og upplýsingatækni, 1.hluti rafmagnstækni | 7 | |||||||||
Tölvu- og upplýsingatækni B.S. | 6 | 4 | ||||||||
Rekstrarfræði BS, tölvu- og upplýsingatæknibraut | 5 | 3 | ||||||||
Tölvunarfræði BS-próf | 17 | 3 | ||||||||
Rafmagns- og tölvuverkfræði MS | 1 | 5 | 4 | 3 | 8 | |||||
Rekstur fyrirtækja og tölvunot, diplóma HÍ | 1 | 4 | 2 | |||||||
Rekstur tölvukerfa, diplóma | 11 | 3 | 2 | 1 | 3 | |||||
Tölvunarfræði MS-próf, 45 ein. | 7 | |||||||||
Tölvunarfræði BS-próf | 20 | 18 | 31 | 25 | 30 | 29 | 48 | 41 | 31 | 24 |
Tölvunarfræði MS-próf | 4 | 2 | 10 | 1 | ||||||
Umhverfisfræði MS í ltölvunarfræðiskor | 1 |
Eins og sjá má þá hefur útskrifuðum tölvunarfræðingum ekki fjölgað síðustu ár og reyndar fækkaði þeim verulega 2005. Tölur fyrir 2006 eru því miður ekki komnar í Hagstofutölurnar en mínar heimildir herma að ekki sé um mikla aukningu að ræða og þeir árgangar sem nú stunda nám séu ekki að stækka mikið.
Tölvunarfræði er ákveðin grunnmenntun fyrir allan hátækniiðnað þó svo að önnur menntun skipti vissulega miklu máli í því sambandi. Stjórnmálaflokkar vilja efla hátækniiðnað og ástkær Forseti lýðveldisins hvetur fyrirtæki eins og Microsoft og Google til að horfa hingað vegna þess að hér sé svo mikið af hámenntuðu fólki.
En það er hins vegar alveg ljóst að ef íslenskt atvinnulíf heldur áfram að vaxa á sama hraða og undanfarið - og ég tala nú ekki um ef hér fara að hasla sér völl erlend hátæknifyrirtæki - þá verður skortur á tölvunarfræðingum. Þessi skortur er raunar til staðar í dag og atvinnulífið bregst við með því að láta fólk úr öðru fögum vinna hugbúnaðarstörf, t.d. verkfræðinga, stærðfræðinga og jafnvel fólk úr viðskiptanámi - oftast með ágætum árangri þó svo að tölvunarfræðingar myndu án ef vinna þessi störf ef þeir væru nógu margir.
Einnig á líklega eftir að færast í vöxt hérlendis að útvista hugbúnaðarþróun til heimssvæða þar sem launakjör eru lægri og meira framboð af menntuðu fólki. Þetta er orðið algengt erlendis en hentar samt betur við framleiðslu staðlaðs hugbúnaðar heldur en sérsniðinnar þjónustu og ráðgjafar eins og íslenskt atvinnulíf þarfnast fyrst og fremst.
![]() |
Forritað af kappi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.3.2007 | 22:15
Lærði íslensku á viku
Sjá klippur með ofurmenninu Daniel Tammet á yahoo, m.a. úr kastljósi
http://60minutes.yahoo.com/segment/44/brain_man
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2007 | 22:21
Barcelona - here we come
Við Unnar Geir keypum í kvöld miða á leikinn Barcelona - Levante UD þann 29. apríl. Hann hlakkar mikið til, 56 dagar af eftirvæntingu sem er það skemmtilegasta við hvert ferðalag.
Fljúgum út þann 26 og heim þann 30. Með okkur í för verður annar fimmta flokks fylkiskappi Kwanchai Þór Bogason ásamt föður hans Boga Eymundsyni. Vonandi sjáum við Eið Smára spila og það væri algjör bónus ef hann myndi skora mark.
Í ferðinni ætlum við einnig að fara í leikjagarðinn Port Aventura en Unnar hefur reyndar einu sinni farið þangað áður. Þá var ég píndur í stóra rússibanann en ég fer ekki í hann aftur. Þetta verður í fjórða skipti sem ég fer til Barcelona og telst ég þó ekki mjög ferðaglaður maður. Fyrst fórum við fjölskyldan þangað árið 2000 þegar við vorum í Lloret d'Mar, þá rétt mistum við af því að komast í dýragarðinn og sáum ekki hvítu górilluna sem lést skömmu síðar. Síðan var ég í Barcelona á Gartner ráðstefnu 2005. Árið 2006 fórum við Dísa þangað með fleira fólki að eta, drekka og spila golf. Barcelona er geðsleg borg en er víst orðin önnur vinsælasta ferðamannaborg Evrópu á eftir París. Enda var það þannig síðast að mannþröngin á Römblunni á kvöldin var nánast eins og á Lækjartorgi 17. júní. Ég las mjög skemmtilega bók í vetur, Skuggi vindsins efrir Carlos Ruiz Zafón, sem gerist í Barcelona. Þá var ekki verra að þekkja aðeins til staðhátta. Ég hvet alla til að lesa þessa bók.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2007 | 22:10
Kvöldroðinn bætir og segir satt...

Samt var það nú þannig að þrátt fyrir roðann hér í morgun kom engin úrkoma í dag og reyndar augljóst strax í morgun að svo yrði ekki. Í dag hefur verið 2-4 stiga frost og norðan bál. Ég sé á vef Veðurstofunnar að vindhraðinn í Hjarðarlandi hefur farið í 12m/s af NA. Roðinn var heldur ekki mjög sterkur í morgun, meira fölbleikur. Þessar gömlu veðurspár byggðar á kvöld- og morgunroða hljóta líka að miðast við staðbundnar aðstæður og kunnáttu manna til að lesa í náttúrufarið í sinni heimabyggð.
Ég fór aðeins niður á golfvöll og hann er eins og við er að búast gaddfrosinn og bólginn. Þessi vetur hefur verið kaldur í samanburði við síðasta vetur sem var ákaflega mildur og jörð var þá frostlaus í byrjun maí. Þetta þarf þó ekki að vera slæmt ef vel vorar, hættan á kali er í apríl og maí þegar grasið er farið að taka við sér ef þá koma snöggar hitasveiflur samhliða úrkomu.
Við Dísa erum ferðaþjónustubændur þessa helgi þar sem Bragi ráðsmaður er búinn að vera í bælinu alla vikuna. Í gærkvöldi afhentum við gestum lykla af sumarhúsum og í dag höfum við verið í Réttinni og nokkrir hafa rekið inn nefið til að kaupa sér eitthvað smálegt. Líklega er tap á rekstrinum í dag en maður getur ekki alltaf verið að hugsa um helvítis peningarna.
Ég hef notað tímann til að uppfæra heimasíðuna www.uthlid.is. Ég er búinn að endurnýja golfsíðuna ....
http://www.uthlid.is/mambo/index.php?option=com_content&task=view&id=17&Itemid=28
http://pg.photos.yahoo.com/ph/uthlid/my_photos
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2007 | 21:02
Ljóð vikunnar
Síðustu viku lá ég andvaka nokkur kvöld og fór þá að yrkja ljóð undir áhrifum frá Steini Steinarr sem ég var að lesa einu sinni sem oftar. Þetta ljóð á sér ekki rætur í neinni sérstakri persóunlegri reynslu þó svo að allt sem við hugsum, gerum og segjum sé að einhverju leyti byggt á þeirri skynjun á veruleikanum sem við upplifum í lífinu.
Hrímhvítum augum leit veturinn heiðlöndin breið |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 22:14
Dow Jones slær met
Þarna sést t.d. að vísitalan stóð hæst í 380 stigum í júlí 1929 fyrir fallið mikla í kreppunni og náði ekki aftur sama styrk fyrr en í október 1954. DJIA fór í 11900 stig í janúar 2000, tók svo fræga dýfu sem náði lágmarki í október 2002 og var ekki komin í sama gildi fyrr en seint á síðasta ári. Meðal spekúlanta eru skiptar skoðanir um hvað næstu misseri hafa í för með sér. Sumir telja að vísitalan muni gefa eftir en aðrir benda á að hlutabréf séu ekki dýr í sögulegu samhengi og aukin stærð heimshagkerfisins muni styrkja hlutabréfamarkaðinn og draga úr sveiflum.
Hér á blog.is vantar eiginlega færsluflokk um fjármál og hlutabréf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2007 | 21:59
Reynslan af kvótakerfinu
Orti þessa limru fyrir nokkru síðan. Er að útvíkka limruformið þannig að rímorðin í 3. og 4 . línu eru víxluð miðað við þau í fyrstu, annarri og fimmtu. Þetta er svokölluð víxllimra. Er búinn að yrkja nokkrar fleiri svona sem kannski komast á bloggið síðar.
Gunnvör í Hnífsdal var gátlaus
en Guðný í Ólafsvík látlaus.
Gunnvör lauslát
en Guðný kaus gát
því bæði var kvóta og bátlaus.
Ljóð | Breytt 19.2.2007 kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2007 | 22:25
Bill Gates spilar bridge við íslendinga
Ég sá að Bill Gates sagði á ráðstefnu í Bretlandi að hann hefði spilað brids við Íslendinga á netinu. Það var gaman að heyra þennan áhrifamann nefna þetta og mig minnir að spilamennska þessi hafi einnig borið á góma í samræðum þeirra Ólafs Ragnars fyrir skömmu. Unglingur lærði ég brids Flúðaskóla hjá Jóhannesi Sigmundssyni en Hrunamenn hafa langa bridshefð og spila ennþá af krafti. Þá hefði mig ekki grunað að eftir um tvo áratugi gæti maður hérna á skerinu spilað við fólk um veröld víða eins og það sæti við hliðina á manni. Ég spila stundum bridge á Yahoo og á tímabili þegar ég spilaði nokkuð stöðugt var maður farin að kynnast fólki víðsvegar um heiminn. Um daginn var ég að spila við konu í Brasilíu og andstæðingarnir voru í Oklahoma og Svíþjóð. Maður getur líka spjallað við spilafélagana, spurt um veðrið og hitt og þetta. Það hefur vakið athygli mína hversu margt harðfullorðið fólk í Bandaríkjunum er að spila brids á netinu. Ég hef orðið var við marga ellilífeyrisþega í Flórída sem stunda netbrids enda er ennþá hádagur hjá þeim þegar maður sest sjálfur við tölvuna hérna á síðkvöldum.
Þó ég sé bara maður á miðjum aldri þá voru tölvur varla til nema í háskólum þegar ég var að alast upp og þegar ég byrjaði að vinna við forritun 1988 var tölvupóstur ekki til og internetið ekki heldur. Í dag vinnur meira en helmingur þjóðarinnar sín störf nánast eingöngu við tölvur. Þessar breytingar eru ótrúlegar og sér ekki fyrir endann á þeim.
Bill Gates er líklega sá einstaklingur sem hefur haft mest áhrif á þessa gífurlegu þróun sem kölluð hefur verið upplýsingabyltingin. Fyrirtækið Microsoft sem hann stofnaði og gerði að stórveldi ásamt félögum sínum hefur með einhverjum hætti ætíð tekist að koma með réttar vörur á réttum tíma. Þannig hafa þeir yfirleitt haft yfirhöndina í samkeppni við önnur fyrirtæki þó halda megi því fram að þau hafi stundum verið með betri vöru.
Ég sá Bill eitt sinn halda fyrirlestur í á tölvuráðstefnu Chicago. Við félagi minn vöknuðum eldsnemma því við höfðum verið varaðir við því að árið áður hefðu færri komist að en vildu. Þegar við komum í rástefnuhöllina var löng biðröð en við náðum sætum að lokum og hlustuðum á karlinn kynna einhverjar nýjungar sem ég man ekki lengur hverjar voru.
En altént er Bill Gates ríkasti maður í heimi í dag - og holdgerfingur Ameríska draumsins. Hann er líklega ekki sá vesti til að bera þann kyndil. Virðist látlaus og alþýðlegur og berst ekki mikið á. Frægt er hversu mikið fé hann lætur af hendi rakna til góðgerðarmála og engum dylst að hann hefur miklar hugsjónir um nýtingu upplýsingatækninnar í þágu allra jarðarbúa.
Bloggar | Breytt 4.2.2007 kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2007 | 17:26
Fyrsta bloggfærsla
Er einn heima að ná mér eftir flensu og datt inn á þetta bloggsvæði af moggavefnum. Ég hef verið áskrifandi að mogganum síðan ég flutti til Reykjavíkur 1984. Var með hita í allan gærdag og í hálfgerðu móki en svaf þokkalega í nótt eftir að hafa tekið paratabs og er hressari í dag. Var búinn að vera slappur síðustu viku en harkaði samt af mér og mætti í vinnuna. Er enda að upplagi hraustur og ekki kvillasækinn.
Á föstudagskvöldið komu til okkar félagar úr Barcelonaferð síðatliðið vor og við vorum að skoða myndir, drekka og kjafta til kl. tvö. Það hefur líklega verið gott fyrir veirurnar sem þó eru að lúta í lægra haldi núna. Myndin sem ég setti hérna á prófílinn er einmitt af einum kubbnum. Þarna er ég á fyrsta teig á Sant Joan golfvellinum við Barcelona, nýbúinn að slá eitt af mínum frægu 250 metra upphafshöggum á miðja braut. Þetta var mjög góður völlur og ekki síður Masia Bach völlurinn sem við spiluðum á í sömu ferð en margir kannast við samnefnd vín sem framleidd eru á þessum búgarði af sömu fjölskydu.
Á bíórásinni er að klárast myndin Mean Girls með Lindsey Lohan í aðalhlutverki. Ágæt mynd og vel leikin.
Horfði áður á kastljósið og svo landsleik Íslendinga og Þjóðverja.
Reikna ekki með að verða virkur bloggari en ég er að minnsta kosti búinn að fara í gegn um uppsetninguna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þorsteinn Sverrisson
Nýjustu færslur
- Sparnaður í Excel en ekki í alvörunni
- Einræða Guðs um framtíð lífs á Jörðinni
- Leifur Eiríksson kemur alltaf aftur
- Taflmaðurinn
- Leitarvélar veita þjónustu
- Eitt sinn skal hver deyja
- Náttúruleg óhreinindi eru hollari en aukaefni
- Skáldfeðgar III
- Skáldfeðgar II
- Skáldfeðgar I
- Skilyrði fyrir lífi eru margþætt
- Lítil saga um verðskanna
- Fjórar vísur um sólarlagið við Faxaflóa
- Er rétt að allar auðlindir séu í þjóðareign?
- Þrúgur reiðinnar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 60138
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar