Færsluflokkur: Bloggar
28.4.2007 | 20:33
Barcelona - dagur #2
Eftir að hafa borðað snarl um klukkan tvö pöntuðum við leigubíl til að fara með okkur í skemmtigarðinn Tibidabo sem er hér í talsverðri hæð efst í borginni. Þetta er ákaflega fallegur staður með stórkostlegu útsýni yfir borgina. Las á netinu að þetta er hæsti fjalltoppur í Collserolla hæðunum fyrir ofan Barcelona. Strákarnir prufuðu ýmis leiktæki svo sem vatnabáta, klessubíla, rússíbana, lestir og fleira. Þarna vorum við til klukkan sjö og enduðum á því að labba upp í afskaplega fallega kirkju sem trónir þarna efst á fjallinu. Á hæsta kirkjuturninum er risastórt kristlíkneski. Þegar við vorum að labba niður komu brúðhjón út úr einum kirkjusalnum. Við tókum svo rútu til baka á Katalóníutorgið og enduðum daginn á Burger King.
Búinn að setja fleiri myndir inn á sama albúmið og í gær.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2007 | 18:22
Barcelona - dagur #1
Lentum í Barcelona um kl 23 í gær og vorum komnir á hótelið um miðnætti. Ferðalagið gekk ágætlega en Unnar og Donni voru samt orðið nokkuð óþreyjufullir undir það síðasta. Fengum okkur snarl á Tapaz bar hérna hjá Hótelinu þegar við komum í gærkvöldi. Strákunum fannst það reyndar ekki góður matur. Hótelið heitir Gran Ducat og er alveg þokkalegt og frábærlega staðsett. Alveg við Katalóníutorgið. Reyndar er mjög hljóðbært á milli herbergja og svo eru greinilega neðanjarðarlestarlestargöng undir húsinu þar sem það hristist reglulega þegar lestin fer í gegn. Hér er þó ágæt þráðlaus internettenging sem er get notað til að skrá inn þetta blogg.
Við vöknuðum í morgun um kl. 9 að staðartíma og fengum okkur morgunmat. Síðan fórum við með neðanjarðarlestini í dýragarðinn og það tók góðan tíma að skoða hann. Við tókum leið L4 (gulu línuna) eins og þegar við Dísa vorum hér í fyrra. Það er alltaf gaman að sjá fjölbreyttar dýrategundir þó svo að maður vorkenni þeim alltaf smávegis að vera lokuð inni í búrum. Við sáum m.a. fjölda apategunda, fugla, fíla, flóðhesta, nashyrninga, gíraffa, ljón, tígrisdýr, blettatígur og antílópur. Löbbuðum niður alla Römbluna í dag og niður í Olympíuþorpið. Vorum að spá í að fara í vatnasafnið en það var svo löng biðröð að við hættum við. Kannski förum við þangað á mánudaginn. Í dag er búið að vera ágætt veður, um 20 stiga hiti en dálítil gjóla og ekkert mjög hlýtt á bersvæði.
Á Römblunni var mikið af sérkennilegum fyrirbærum á vegi okkar. Köttur í tunnu, maðurinn með ljáinn, dvergar, hafmey, púkar og fleiri skrípi. Auk þess fimleikaflokkar, breikarar, tónlistamenn, blómasalar og páfagaukabraskarar. Þá voru á römblunni margir bráðhagir listamenn sem teiknuðu andlitsmyndir af fólki gegn vægu gjaldi. Einn þeirra spreytti sig á Unnari. Síðast en ekki síst hitti Unnar sjálfan Ronaldinho sem sýndi honum nokkra snilldartakta með fótboltanum.
Við fengum okkur ágætan mat niður við höfn og horfðum yfir snekkuhöfnina þar sem sjá mátti mörg glæsileg skip sigla að og frá landi undir verndarhendi Christophers Columbusar, en glæsileg stytta hans gnæfir yfir höfnina hérna.
Hægt að skoða fleiri myndir hér.
Bloggar | Breytt 30.4.2007 kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2007 | 22:09
Skólagjöld í háskólum
Nú hef ég í sjálfu sér ekki fullmótaða skoðun á þessu en fer bara að hugsa.
Einar hættir námi eftir grunnskóla, tekur meirapróf og vinnuvélaréttindi. Hann þarf að borga fyrir það talsverðar fjárhæðir. Síðan fer hann að vinna af kappi 17 ára gamall og borga skatta til samfélagsins. Tvítugur kaupir hann sér traktorsgröfu og vörubíl og þarf að taka lán með fullum vöxtum á almennum markaði.
Jón er jafnaldri Einars. Hann fer í menntaskóla í fjögur ár. Háskóla Íslands í viðskiptafræði önnur fjögur ár, síðan í MBA nám erlendis í tvö ár. Þessi 10 ár er hann að þiggja ókeypis menntun, niðurgreidd lán, niðurgreidd leikskólapláss og fleiri hlunnindi frá samfélaginu.
Með námi sínu er Jón aðeins að afla sér hæfni til að selja á vinnumarkaðnum. Þegar hann kemur heim fær hann vel launað starf í banka.
Það er hægt að halda því fram að Einar hafi fjármagnað námið hjá Jóni með sköttunum sínum - á meðan hann sjálfur fékk engan stuðning frá samfélaginu í því sem hann gerði til að koma sér upp lífsviðurværi.
Er þetta réttlátt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.4.2007 | 09:37
Konur og símar
Sá blogg um kynjakvóta sem leiddi af sér umræður um ýmsar uppfinningar sem hafa létt konum lífið (auðvitað körlum líka). Þá rifjaðist upp fyrir mér sagan um það þegar síminn var fundinn upp.
Það var Alexander Graham Bell sem fann upp símann. Til að byrja með gat hann ekkert notað uppfinninguna því hann var eini maðurinn í heiminum sem var með síma! Svo hann fann upp annan síma og lét konuna sína hafa. Þetta var mjög þægilegt og nú gátu þau alltaf hringt í hvort annað og látið vita af sér. Þá bað konan hann um þriðja símann svo hún gæti talað við mömmu sína sem var orðin fullorðin. Alexander gerði það og lét tengdamóður sína hafa splunkunýjan síma. En viti menn, næst þegar Alexander ætlaði að hringja í konuna sína - þá var á tali!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.4.2007 | 22:46
Líkið í forstofunni
Það var kaldur rigningarhraglandi sem tók á móti okkur þegar við komum í sumarbústaðinn í kvöld. Forstofuhurðin hefur verið dáldið stíf upp á síðakastið og við vorum smá stund að opna hana. Loksins þegar við náðum að rykkja henni upp blasti við okkur ófögur sjón, á gólfinu var illa útleikið lík sem hafði verið nagað í sundur til hálfs. Okkur til undrunar var engin fnykur af líkinu sem bendir til þess að það hafi ekki verið mjög langt síðan þessi óhamingjusami einstaklingur lést fyrir hendi miskunarlauss morðingja. En af útliti líksins að dæma var dánarorsökin strax augljós.
Ransókn málsins hófst strax, eða réttara sagt um leið og líkið hafði verið tekið upp með fægiskóflu og hent á bak við húsið. Fljótlega leystist morðgátan. Í ljós kom að um síðustu helgi hefur snillingurinn Björn Þorsteinsson gleymt að loka glugganum á herberginu sem hann svaf í. Þannig er að hérna á bænum er köttur að nafni Luka, nafnið er þýskt því að þýsk vinnukona sem hér var skýrði köttinn sama nafni og kött sem hún átti í sínu heimalandi. Fyrir innan gluggann voru greinileg fótspor eftir Luka og augljóst að hann hefur veitt músina úti og síðan stokkið með hana inn um gluggann til að þurfa ekki að snæða þennan góða málsverð undir beru lofti.
Luka er öflugur músa-raðmorðingi. Áður en hann kom hingað voru mýs plága. Núna sjást þær örsjaldan og þá yfirleitt dauðar. Þegar bloggritari skrifar þetta er Luka fyrir utan húsið að gæða sér á Whiskas. Ég held að honum finnist það þrátt fyrir allt betri fæða en mýs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2007 | 10:05
Þjóðaratkvæðagreiðslu takk
Mikill meirihluti segir 35,72% tekjuskatt of háan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2007 | 21:43
UT konur og tölvunördar
Það hefur lengi verið nokkur ráðgáta hvers vegna svona fáar konur starfa í þessu fagi. Það sem er jafnvel enn undarlegra er að svo virðist sem þeim sé frekar að fækka en hitt undanfarin ár.
Nýlega las ég tvær greinar á vefnum www.cioinsight.com um þetta efni, Women in I.T.: Where the Girls Aren't og Numbers Show Big Decline of Women in IT. Þarna kemur fram að konum í upplýsingatækni í USA hefur fækkað talsvert frá árinu 2000, eða úr um 29% í 26%. Mögulegar skýringar sem nefndar eru, er að fagið hafi á sér tölvunördastimpil og að konum finnist þessi atvinnugrein ekki bjóða upp á nægilegt jafnvægi milli fjölskyldulífs og starfs.
Ég hef tekið þátt í að stjórna hugbúnaðarfyrirtæki undanfarin ár og hef orðið var við lítinn og jafnvel minnkandi áhuga kvenna á upplýsingatækni. Þetta er mjög slæmt, ekki síst vegna þess að það er mikið pláss fyrir fleira fólk í þessari atvinnugrein. Störf í upplýsingatækni eiga að höfða til kvenna, þau krefjast lítils vöðvaafls, þau eru skapandi, þar eru betri laun en almennt gerist, þar eru mikil mannleg samskipti, sveigjanlegur vinnutími og þar starfar mikill fjöldi af fallegum og skemmtilegum karlmönnum :)
Ég held að meginskýringarnar séu ímyndarmál greinarinnar og það hversu margir aðrir spennandi kostir bjóðast konum sem eru að velja sér háskólanám. Háskólarnir hafa ekki verið nægilega duglegir við að þróa tölvunarfræðinámið og setja á það flott business look eins og t.d. hefur verið gert í sambandi við viðskiptafræði og lögfræði. Hvers vegna bjóða háskólarnir t.d. ekki upp á Viðskiptatölvunarfræðibraut eins og "Viðskiptalögfræði"? Þetta kemur reyndar lika niður á sókn karla í námið sem hefur ekki verið nægileg undanfarin ár eins og ég fjallaði um í öðru bloggi fyrir nokkru síðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.4.2007 | 12:21
Umfjöllun á heimasíðu Alcan
Michel Jacques forstjóri Alcan Primary Metal Group þakkar stuðningsmönnum álversins í Hafnarfirði:
"A large proportion of the citizens of Hafnarfjordur support our project and I would like to thank them, as well as all of our ISAL employees, for their invaluable contribution in advancing the development of this project that we believe is beneficial to all stakeholders,"
Jean-Philippe Puig, President of Alcan Primary Metal Europe and Cameroon segir:
"Alcan has recently secured a block of energy and the authorization from the Icelandic Government for the project,"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2007 | 13:20
FORTUNE'S 10 Green Giants
These companies have gone beyond what the law requires to operate in an environmentally responsible way.
http://money.cnn.com/galleries/2007/fortune/0703/gallery.green_giants.fortune/5.html
When Alcan took over French rival Pechiney in late 2003, the Montreal-based aluminum maker also landed world-class smelting technology. Because of Pechiney's proprietary methods (and an aggressive push by Alcan to track emissions), the company has been able to reduce its greenhouse-gas output by 25 percent since 1990, while production increased 40 percent. Alcan's latest goal is to install a high-capacity process that increases energy efficiency by as much as 20 percent and lowers emissions. A pilot plant in Quebec is already testing the technology. "It's inherent to the engineering culture to respond to problems like these," says Alcan's Corey Copland. "It's what makes engineers tick." --Jia Lynn Yang
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2007 | 19:13
Ál - limra
Það er mergurinn sjálfur í málinu
að mikið er sopið af kálinu
sem kemur í ausu
að kostnaðarlausu
- Kveður svo Rannveig í álinu -
Þessi limra rifjaðist upp fyrir mér í allri álumræðunni. Var minnir mig upphaflega ort um þann fræga mann "Ragnar í álinu" en getur eins passað við Rannveigu núverandi áldrottningu. Held að þetta sé eftir Hrólf Sveinsson sem er alkunnur fyrir smellnar limrur.
Annars er ég frekar jákvæður í garð ISAL og Alcan þó stækkun verksmiðjunnar skipti mig litlu. Ég var að vinna þar sem hugbúnaðarverktaki í nokkur ár. Tek undir með þeim sem segja að álframleiðsla sé hátækniiðnaður. Og kosturinn við þennan hátækniiðnað er að hann býr líka til störf fyrir fólk sem ekki er langskólagengið. Mér finnst stundum eins og háskólamenntað fólk gleymi því að það búa fleiri á landinu sem eiga líka rétt á að það séu sköpuð fyrir þá góð störf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þorsteinn Sverrisson
Nýjustu færslur
- Sparnaður í Excel en ekki í alvörunni
- Einræða Guðs um framtíð lífs á Jörðinni
- Leifur Eiríksson kemur alltaf aftur
- Taflmaðurinn
- Leitarvélar veita þjónustu
- Eitt sinn skal hver deyja
- Náttúruleg óhreinindi eru hollari en aukaefni
- Skáldfeðgar III
- Skáldfeðgar II
- Skáldfeðgar I
- Skilyrði fyrir lífi eru margþætt
- Lítil saga um verðskanna
- Fjórar vísur um sólarlagið við Faxaflóa
- Er rétt að allar auðlindir séu í þjóðareign?
- Þrúgur reiðinnar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar